Rafmagnsverð hækkaði um 6,7% milli mánaða eða frá desember í fyrra til janúar á þessu ári samkvæmt tölum sem Hagstofa Íslands birti í morgun.
Mun það vera mesta mánaðarhækkun sem mælst hefur síðan um mitt ár 2010, samkvæmt Samtökum iðnaðarins.
Á síðustu tólf mánuðum hefur rafmagnsverð hækkað um 15,1%, sem er mesta hækkun frá miðju ári 2011, eða í 13 ár. Samkvæmt SI hefur tólf mánaða hækkunartakturinn verið að aukast undanfarið, þrátt fyrir að verðbólga hafi verið á niðurleið.
Samkvæmt greiningu SI frá því í desember endurspeglar hækkunin á raforkuverði þá stöðu að raforkuframleiðsla hefur ekki haldið í við vöxt og þróun samfélagsins, þar á meðal fólksfjölgun.
Líkt og Viðskiptablaðið greindi frá í vikunni lækkaði heildsöluverð á raforku verulega í mánaðarlegu söluferli raforkumarkaðsins Vonarskarðs á svokölluðum mánaðarblokkum.
Lækkunin nam að meðaltali 11,6% milli mánaða en 13,3% samanborið við hápunkt verðþróunarinnar í nóvember.
Samkvæmt Sigurði Hannessyni, framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins, eru það jákvæðar fréttir sem endurspegla betri vatnsbúskap og þar með eru horfur á meiri framleiðslu raforku en útlit var fyrir í haust.
„Það er virkilega ánægjulegt að orkufyrirtækin bjóði nú lægri verð en í nóvember eins og við sjáum í útboðum Vonarskarðs. Hafa þarf í huga að lítið magn er að baki viðskiptunum. Það blasir þó við að almenningur og fyrirtæki njóti ábata af bættri stöðu eftir miklar hækkanir á raforkuverði undanfarin misseri þar sem orkufyrirtæki hafa hugsanlega farið of geyst í verðhækkanir,“ segir Sigurður.
Mánaðarblokkir fela í sér fast magn raforku á hverri klukkustund heils almanaksmánaðar, og frá því í fyrrasumar hefur bróðurpartur heildsöluviðskipta með raforku verið á því formi, þar sem ekki hafa átt sér stað teljandi viðskipti með lengri samninga.
Verðlækkunina í síðasta útboði má að einhverju leyti rekja til betri lónsstöðu Þórisvatns en eftir þunga byrjun á vatnsárinu 1. október hefur lónsstaða vatnsins braggast verulega eins og sjá má á meðfylgjandi grafi.
Þórisvatn er stærsta stöðuvatn landsins og mikilvægasta miðlunarlón Landsvirkjunar.