Úrvalsvísitalan OMXI 15 lækkaði um 0,39% í viðskiptum dagsins sem námu einungis 1,5 milljarði króna. Vísitalan lokaði í 2.612 stigum.
Hlutabréfaverð Alvotech leiddi lækkanir er gengi félagsins fór niður um tæp 4% í 212 milljón króna veltu. Dagslokagengi Alvotech var 1.160 krónur sem samsvarar tæplega 13% lækkun síðastliðinn mánuð og 34,5% lækkun á árinu.
Gengi Oculis lækkaði um 2,6% í 22 milljón króna veltu og var dagslokagengið 2.375 krónur á hlut.
Langmesta veltan var með bréf Íslandsbanka er gengi bankans fór niður um tæp 2% í hálfs milljarðs króna veltu. Dagslokagengi Íslandsbanka var 117 krónur á hlut sem er enn töluvert yfir útboðsgengi á hlut ríkisins.
Þar á eftir var mesta veltan með Kviku banka en gengi bankans lækkaði um rúm 2% í 259 milljón króna viðskiptum.
Kvika banki tilkynnti eftir lokun Kauphallarinnar á föstudaginn að stjórn bankans teldi ekki forsendur til að hefja samrunaviðræður á grundvelli erinda stjórna Arion og Íslandsbanka frá því í lok maí.
Þar hafði Íslandsbanki lýst því yfir að hann væri reiðubúinn að bjóða 10% ofan á markaðsvirði Kviku við útreikning á skiptihlutföllum.
Stjórn Kviku sagðist þó reiðubúin að endurmeta ákvörðun sína, séu aðilar tilbúnir að endurskoða þær forsendur um virði Kviku sem fram komu í framangreindum erindum.
Íslandsbanki sagði í tilkynningu á föstudaginn að hann hygðist taka afstöðu stjórnar Kviku til nánari skoðunar, m.a. í samhengi við önnur tækifæri bankans á markaðnum.