Rekstur Icelandair hefur verið mjög sveiflukenndur síðustu ár. Áfallahrina í formi heimsfaraldurs, gjaldmiðlasveiflna, vinnudeilna, eldgosa og endurreisnar hafa sett mark sitt á starfsemina. Gengi félagsins hefur undanfarna mánuði verið rétt yfir útboðsgengi þess í september 2020, sem var 1,0. Hæst fór gengið árið 2022 í 2,2.
Nú gætu tvær áskoranir verið framundan. Önnur eru átökin milli Ísrael og Íran, sem Bandaríkin blönduðu sér óvænt í um síðustu helgi og gæti hækkað olíuverð, og endurnýjun kjarasamninga við starfsfólk félagsins í haust. Á sama tíma hefur samkeppnin minnkað nokkuð með miklum breytingum á leiðakerfi Play.
Hægræðingaráætlunin ONE
Í skýrslunni greiningarfyrirtækisins Akkurs, sem kom út í síðustu viku, segir að Icelandair hafi tekið afgerandi skref til að styrkja reksturinn og bæta afkomu. Ekki síst með hagræðingaráætluninni ONE, sem miðar að því að auka hagkvæmni allra rekstrarþátta.
Með áætluninni stefnir félagið að því að ná stöðugri rekstrarafkomu, um 8% rekstrarframleigð (EBIY) til framtíðar, með það að leiðarljósi að byggja upp traustan grunn undir áframhaldandi vöxt. Fyrstu merki þess eru þegar farin að skila sér í bættri nýtingu á flugi og meiri tekjum á hvern farþega.
Gert er ráð fyrri að hagræðingarverkefnið ONE auki rekstrarhagnað um 70 milljónir dala á ársgrundvelli í lok árs 2025. Akkur segir að þegar á fyrsta ársfjórðungi hafi 40 milljón dala árlegur ávinningur náðst með verkefninu, og því séu spár um aukna arðsemi hóflegar.
Nýr flugfloti en óvissa með MAX vélarnar
Mikilvægur þáttur í stefnu félagsins til framtíðar er uppfærsla á flugflotanum. Icelandair hefur í gegnum tíðina treyst á Boeing-flugvélar, en innleiðing á nýjum Airbus-vélum er hafin, sem bjóða upp á betri nýtni, meiri drægni og lægri eldsneytiskostnað. Fjórar Airbus A321LR vélar eru þegar komnar í notkun hjá félaginu.
Boeing 737 MAX er enn burðarás flotans og er 21 flugvél í þjónustu Icelandair í dag. Icelandair hefur skuldbundið sig til kaupa á yfir 20 Airbus vélum. Þar af hefur félagið samið um kaup á 13 A321XLR vélum, sem afhentar verða frá og með árinu 2029, auk kaupréttar á allt að 12 vélum til viðbótar.
Drægni A321XLR vélanna er 8.700 km eða 2.200 km lengri en 737 MAX. Þær gera Icelandair kleift að fljúga á hagkvæmri vél á Vesturströnd Bandaríkjanna, Mið-Ameríku, Indlands og Miðausturlönd í beinu flugi. Þetta getur veitt Icelandair samkeppnisforskot í alþjóðlegu samhengi, þar sem félagið getur tengt saman markaði sem áður voru utan seilingar.
Icelandair rekur enn átta gamlar Boeing 757 vélar og þrjár B767 breiðþotur, sem verða leystar af hólmi með A321 vélunum. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort 737 MAX verði í framtíðinni skipt út fyrir A320, eða hvort Icelandair muni áfram halda úti blönduðum flota.
Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu sem kom út í morgun. Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér.