Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur undirritað lagasátt sem segir að Meta, eigandi Facebook og Instagram, muni greiða honum um 25 milljónir dala eftir að hafa verið bannaður í kjölfar óeirðanna þann 6. janúar 2021.
Trump kærði bæði samfélagsmiðilinn og forstjóra þess, Mark Zuckerberg, eftir bannið sem var síðan aflétt í júlí 2024 í aðdraganda forsetakosninganna.
Fréttamiðillinn WSJ greindi fyrst frá málinu en rúmlega 22 milljónir dala af greiðslunni munu renna í sjóð til uppbyggingar á forsetabókasafni Donalds Trumps. Restin verður notuð í málskostnað og samkvæmt sáttinni viðurkennir Meta ekki sök.
Trump hafði gagnrýnt Zuckerberg í mörg ár en eftir kosningasigur Trump í nóvember heimsótti Zuckerberg Trump í Mar-a-Lago í Flórída. Mánuði seinna gaf Meta eina milljón dala í vígslusjóð og var Zuckerberg einnig gestur við embættistöku forsetans.