Bako Ísberg hagnaðist um 83 milljónir króna á síðasta ári en árið áður nam hagnaður 31 milljón króna. Þar af leiðandi hátt í þrefaldaðist hagnaður félagsins á milli áranna 2022 og 2023. Hægt er að nálgast ársreikninga félagsins aftur til ársins 2007 en frá þeim tíma hefur það aldrei skilað jafn miklum hagnaði og í fyrra. Þá jók félagið tekjur sínar um 22% milli áranna, úr 780 milljónum árið 2022 í 950 milljónir árið 2023 og hafa þær aldrei verið hærri.

Eignir félagsins námu 362 milljónum króna í lok árs 2023 og eigið fé 173 milljónum króna. Því var eiginfjárhlutfall 47,9%. Skuldastaða félagsins var með miklum ágætum í lok síðasta árs en til marks um það hvíla engar langtíma vaxtaberandi skuldir á því og skammtímaskuldir við lánastofnanir námu einungis 79 þúsund krónum. Laun og launatengd gjöld námu 165 milljónum í fyrra, samanborið við 159 milljónir árið áður. Meðalfjöldi stöðugilda var 12 yfir árið 2023 en 10 árið 2022.

Þegar horft er áratug aftur í tímann má sjá að félagið hefur mun oftar en ekki tekist að skila hagnaði. Árin 2013 og 2018 skilaði félagið tapi, alls upp á 35 milljónir króna, en önnur ár á tímabilinu hefur félagið skilað hagnaði upp á samtals 288 milljónir króna. Hægt er að nálgast tekjur félagsins allt aftur til ársins 2015 í ársreikningum en á árunum 2015 til 2023 var veltan mest í fyrra, 950 milljónir, en minnst árið 2020, 420 milljónir, vegna áhrifa heimsfaraldursins.

Bjarni Ákason, framkvæmdastjóri og stærsti eigandi Bako Ísberg, kveðst mjög sáttur með afkomu síðasta árs. „Þetta hefur verið áhugavert ferðalag. Þegar ég kem inn í reksturinn hafði félagið skilað tapi árið áður og mitt fyrsta verk var því að skera niður kostnað. Ég var aðeins búinn að eiga félagið í örfáa mánuði þegar Wow Air varð gjaldþrota og það bitnaði á félögum sem starfa í ferðaþjónustu eða tengdum greinum, sem eru mörg hver í viðskiptum við okkur. Ári síðar breiddist svo út heimsfaraldur með þeim afleiðingum að síminn hjá okkur hætti nánast að hringja. Þrátt fyrir þessi áföll náðum við að halda okkur réttu megin við núllið.“

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér.