Huppuís hagnaðist um 114 milljónir króna eftir skatta á síðasta ári, samanborið við 49 milljóna hagnað árið áður. Stjórn félagsins leggur til að ekki verði greiddur arður til hluthafa vegna síðasta árs, að því er segir í ársreikningi félagsins.
Tekjur Huppuíss, sem er stærsta ísbúðakeðja landsins, jukust um 14,8% á milli ára og námu 1.036 milljónum króna í fyrra. Þetta er í fyrsta skipti sem félagið veltir yfir einum milljarði króna en til samanburðar námu rekstrartekjur þess 903 milljónum króna árið 2023.
Rekstrargjöld jukust um 7,5% milli ára og námu 902 milljónum. Rekstrarhagnaður (EBIT) félagsins tvöfaldðist milli ára og nam 134 milljónum.
Ísbúð Huppu var stofnuð á Selfossi árið 2013 af vinkonunum Telmu Finnsdóttur og Eygló Rún Karlsdóttur og mökum þeirra, þeim Gunnari Má Þráinssyni og Sverri Rúnarssyni. Umsvif fyrirtækisins hafa aukist til muna síðan þá en 10 ísbúðir eru reknar undir merkjum Huppuíss í dag.
Þau seldu helmingshlut í félaginu til Eignarhaldsfélagsins Kolku, aðaleiganda Emmessís, árið 2021 fyrir 160 milljónir króna en Huppa og Emmessís hafa frá upphafi átt í samstarfi við framleiðslu á ísnum sem Huppa selur.
Eignir Huppuís voru bókfærðar á 261 milljón króna í árslok 2024 og eigið fé var um 177 milljónir króna.