Icelandair flutti 4,7 milljónir farþega árið 2024, 9% fleiri en árið á undan og sló þar með nýtt farþegamet, að því er segir í tilkynningu flugfélagsins til Kauphallarinnar.

Farþegar í desember voru 312 þúsund, 18% fleiri en á sama tíma í fyrra. Þar af voru 28% á leið til Íslands, 19% frá Íslandi, 47% ferðuðust um Ísland og 6% innan Íslands.

Sætanýting í desember var 82,6%, sem er met og aukning um 10,2 prósentustig frá fyrra ári.

„Eftirspurn er sterk á öllum mörkuðum en munurinn á milli ára skýrist einnig af því að eldgos hafði neikvæð áhrif á sætanýtingu í fyrra,“ segir í tilkynningu Icelandair.

Mynd tekin úr tilkynningu Icelandair.

„Við höldum áfram að sjá jákvæðar tölur í farþegaleiðakerfinu og er mjög ánægjulegt að sjá nýtt met í sætanýtingu í desember. Þrátt fyrir að veðurfar á Íslandi hafi haft umtalsverð áhrif á stundvísi okkar í mánuðinum var stundvísi yfir árið mjög góð og jókst hún um sex prósentustig samanborið við árið í fyrra,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair.

„Desember markaði nýtt upphaf fyrir Icelandair en í mánuðinum flugum við fyrsta áætlunarflugið á glænýrri Airbus flugvél okkar og fluttum inn í nýja Icelandair húsið í Hafnarfirði.

Horfur fyrir árið 2025 eru góðar og við búumst við 8% vexti á milli ára, þar sem við leggjum sérstaka áherslu á vöxt utan háannatíma ársins sem gerir okkur kleift að nýta innviði félagsins betur. Við finnum fyrir miklum ferðaáhuga sem sást meðal annars í sölu á gjafabréfum Icelandair á síðasta ári. Þessi vara hefur notið mikilla vinsælda um áratugaskeið og árið 2024 jókst salan um 30% samanborið við fyrra ár.“

Seldir blokktímar í leiguflugi voru 65% fleiri en í desember í fyrra. Fraktflutningar drógust hins vegar saman um 7% miðað við sama mánuð í fyrra.

Icelandair segir að stundvísi hafi verið mjög góð yfir árið 2024 eða 82,7%, þrátt fyrir að veðurfar á Íslandi hafi haft umtalsverð áhrif á stundvísi í desembermánuði.