Metfærsla var hjá heimilum landsins úr óverðtryggðum íbúðalánum yfir í verðtryggð íbúðalán nú í september.
Uppgreiðslur á íbúðalánum með breytilega nafnvexti námu 19,5 milljörðum króna umfram lántöku hjá innlánsstofnunum nú í september. Þarna er átt við uppgreiðslur umfram töku nýrra lána.
Þessar uppgreiðslur hafa ekki áður mælst meiri en þær voru 14 milljarðar króna í ágúst sem þá var met. Sé litið til uppgreiðslna óverðtryggðra íbúðalána hjá bæði innlánsstofnunum og lífeyrissjóðum námu þær 17,2 milljörðum króna í september sem er einnig met.
Metlántaka á verðtryggðum lánum
Mikil breyting hefur orðið á töku á lánum með breytilega vexti á undanförnum misserum eftir að Seðlabankinn hóf að hækka stýrivexti. Stýrivaxtahækkanirnar hafa skilað sér með nánast samsvarandi hætti hækkun vaxta á íbúðalánum með breytilega nafnvexti og hafa vaxtagreiðslur af slíkum lánum hækkað mjög mikið síðan Seðlabankinn hóf að hækka stýrivexti i maí 2021.
Það hefur síðan leitt til þess að heimilin hafa flúið þessi lán og fært sig yfir í verðtryggð lán en taka verðtryggðra lána umfram uppgreiðslur þeirra sló líka met nú í september. Þannig nam taka verðtryggðra lána umfram uppgreiðslur 31 milljarði króna en fyrra met var einnig í ágúst þegar upphæðin nam 21,2 milljörðum króna.