Greiningarfyrirtækið Akkur verðmetur hlutabréf Nova á 7,32 krónur á hlut í lok árs 2025. Það er 52% hærra en núverandi 4,82 króna markaðsgengi hlutabréfa fjarskiptafélagsins.
Akkur segir að Nova sé augljóst yfirtökukostur á fjarskiptamarkaðnum. Í greiningunni, sem unnin var af Alexander Jensen Hjálmarssyni, stofnanda Akkurs, er bent á að einingatekjur Nova, bæði hvað farsíma og internet varðar, hafi hækkað töluvert umfram samkeppnisaðila. Þá séu stöðugar og fyrirsjáanlegar tekjur og framlegð hjá félaginu sem á mestu innviðina af íslensku fjarskiptafélögunum.
Meðal annarra tækifæra hjá Nova sé að hægt væri að nýta vildarklúbb félagsins sem er einn sá stærsti hér á landi. Einnig sé Nova byrjað á vaxtarvegferð með kaupum á 20% hlut í Dineout.
Vakin er athygli á því að enginn einkafjárfestir sé leiðandi í hluthafahópi Nova. Þá séu nokkrir af stærri lífeyrissjóðum landsins með lítinn eða engan hlut í fjarskiptafélaginu.
Hvað áskoranir varðar þá segir Akkur að mikil samkeppni ríki á fjarskiptamarkaði. Mikið fjármagn sé bundið í rekstri sem þurfi að ná ásættanlegri arðsemi af.
Einnig er minnst á smæð Nova en markaðsvirði félagsins nemur 17 milljörðum í dag. Félagið er því þriðja minnsta félagið á aðalmarkaði Kauphallarinnar, aðeins á eftir Play og Sýn.
Þá mun Margrét Tryggvadóttir, sem er stærsti einstaki hluthafi Nova með 2,3% hlut, láta af störfum sem forstjóri 1. desember næstkomandi.