Miðlunartillaga sem Ástráður Haraldsson, settur ríkissáttasemjari í kjaradeilu Samtaka atvinnulifsins og Eflingar, lagði fram í síðustu viku var samþykkt í atkvæðagreiðslu sem lauk í morgun.

Kjörsókn meðal félagsmanna Eflingar var 22,8%. Af þeim 4.933 félagsmönnum Eflingar sem greiddu atkvæði voru 4.189, eða 84,9%, sem kusu með miðlunartillögunni.

Um 98,6% af aðildarfélögum SA sem tóku þátt í atkvæðagreiðslunni greiddu atkvæði með miðlunartillögunni og var kjörsókn hjá þeim 81,4%.

Miðlunartillagan felur í sér að launahækkanir félagsmanna Eflingar eru í meginatriðum þær sömu og gilda og samning SA og Starfsgreinasambandsins. Jafnframt er gert ráð fyrir fullri afturvirkni samningsins aftur til 1. nóvember 2022.

Atkvæðagreiðsla um miðlunartillöguna hófst kl. 12 á föstudaginn og lauk kl. 10 í morgun.

„Allt er gott sem endar vel. Við þökkum embætti ríkissáttasemjara fyrir samstarfið, þeim Aðalsteini Leifssyni og Ástráði Haraldssyni ásamt starfsfólki. Við höfum sýnt ábyrga nálgun í fordæmalausri kjaradeilu,“ segir Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA, í tilkynningu á vef samtakanna.

„Nú er óvissu eytt og það ætti einungis að vera formsatriði að klára samninga á opinberum markaði. Ég trúi ekki öðru en að aðilar sem að þeim samningum koma finni til ábyrgðar sinnar. Línan sem mörkuð hefur verið er skýr og ég tel að þjóðin sé einhuga um að hana þurfi að verja.“