Leiðtogafundur Sambands Suðaustur-Asíuríkja (e. ASEAN) hófst í dag í Kúala Lúmpúr í Malasíu. Þetta er í 46. sinn sem slíkur fundur fer fram og munu leiðtogar ræða stjórnmál og viðskipti fram á miðvikudag.
Malasíska ríkisstjórnin, sem gegndi síðast formennsku árið 2015, og gestgjafinn í ár, segja þessa ráðstefnu vera þá mikilvægastu hingað til en aðildarríki ASEAN eru meðal þeirra landa sem urðu fyrir höggi á tollastríði Donalds Trumps.
Á vef Malaymail er vitnað í sérfræðinga sem segja að ráðstefnan í ár gæti rutt veginn fyrir sterkari viðskiptabandalögum milli ASEAN-ríkja og Kína sem gætu leitt til þess að aðildarríkin reiði sig minna á vestræn ríki og þá sérstaklega Bandaríkin.
Sum aðildarríki líta einnig á ráðstefnuna í ár sem tækifæri til að ræða tilkall Kína til Suður-Kínahafsins en sú geopólitíska deila hefur oft verið viðkvæmt mál og ógnað samskiptum innan álfunnar.
ASEAN-ráðstefnan var fyrst haldin á Balí í Indónesíu árið 1976. Sú ráðstefna leiddi til vináttu- og samvinnusáttmála Suðaustur-Asíu og lagði sá sáttmáli grunninn að efnahagslegu samstarfi milli ríkja á svæðinu.