Alþjóðlegir fjármálamarkaðir urðu fyrir verulegum skakkaföllum í morgun í kjölfar ótta við harðnandi viðskiptastríð.

Forseti Bandaríkjanna, Donald Trump, greindi nýverið frá því að hann muni kynna nýja víðtæka tolla í vikunni. Þessi yfirlýsing jók á óvissu og leiddi til hruns á mörkuðum í Asíu og Evrópu.

Evrópska hlutabréfavísitalan Stoxx 600 hefur lækkað um 1,85% í morgun, á meðan breska FTSE 100 hefur lækkað um 1,3%.

Í Asíu í nótt var enn stærri skellur, þar sem japanska Topix-vísitalan lækkaði um 3,3% og Nikkei 225 um 3,9%. Í Taívan hrundi Taiex-vísitalan um 4,2% og suðurkóreska Kospi-vísitalan tapaði 3%. Hang Seng-vísitalan í Hong Kong féll um 1,6%.

Trevor Greetham, yfirmaður fjármagnsstýringar hjá Royal London Asset Management, segir í samtali við Financial Times að engin merki væru um að Trump myndi draga úr hörkunni gagnvart viðskiptasamningum sem sé að valda söluþrýstingi.

Charles De Boissezon, yfirhagfræðingur hjá Société Générale, segir að óvissan sé farin að hafa veruleg áhrif á viðhorf til fjárfestinga.

Mikill samdráttur í tæknigeiranum

Tæknigeirinn varð fyrir sérstökum skakkaföllum, þar sem stórir framleiðendur hálfleiðara misstu talsvert af markaðsvirði.

Taiwan Semiconductor Manufacturing Company lækkaði um 4,4% og Samsung Electronics féll um 3,5%. Japanska fyrirtækið Disco, sem framleiðir vélar fyrir hálfleiðaraframleiðslu, hrundi um meira en 8%. Tencent og Alibaba, tvö stærstu tæknifyrirtækin í Kína, lækkuðu um 1,5% og 2% í Hong Kong.

Annað merki um vaxandi ótta fjárfesta má sjá í ásókn í gull og skuldabréf. Gullverð náði methæðum, eða í 3.128 dali á únsu í dag.

Vextir á bandarísk 10 ára ríkisskuldabréf féllu um 0,06 prósentustig niður í 4,2%, sem gefur til kynna að fjárfestar séu að leita í öruggari fjárfestingar.

„Margir fjárfestar eru að bíða eftir formlegri tilkynningu um tollana og eru að draga sig út af áhættumarkaði,“ segir Wei Li, yfirmaður blandaðra fjárfestinga hjá BNP Paribas í Kína. „Þetta hefur haft víðtæk áhrif á stemninguna á mörkuðum.“

Gjaldmiðlamarkaðir brugðust einnig við, þar sem japanska jenið styrktist um 0,6% gagnvart Bandaríkjadal og stóð í 148,9 jenum á dal.

Kínverski gjaldmiðillinn renminbi styrktist um 0,2% og Bandaríkjadalurinn féll um 0,2% gagnvart helstu viðskiptagjaldmiðlum.

Markaðshreyfingarnar í Asíu og Evrópu komu í kjölfar lækkana í Bandaríkjunum á föstudag, þar sem S&P 500-vísitalan tapaði 2% og Nasdaq-samsetta vísitalan féll um 2,7%.

Gagnrýni á efnahagsstjórn Bandaríkjanna hefur aukist, en nýleg gögn sýna versnandi neytendaviðhorf og hættu á samdrætti í hagkerfinu.

Trump hefur lýst komandi miðvikudegi sem „frelsisdegi“ og lofað að beita tollum á öll lönd sem hann telur að hafi ósanngjarna viðskiptahætti gagnvart Bandaríkjunum. Þessar yfirlýsingar hafa valdið óvissu á alþjóðlegum mörkuðum og gætu haft veruleg áhrif á framtíð viðskipta og hagvaxtar.