Nox Medical ehf. hagnaðist um rúmlega 9,7 milljónir evra á síðasta ári, eða sem nemur um 1,4 milljörðum króna. Árið áður hagnaðist félagið um rúmlega 5,8 milljónir evra, sem nemur rúmlega 867 milljónum króna og jókst hagnaðurinn því um 67% á milli áranna 2023 og 2024. Rekstrartekjur námu 38 milljónum evra, eða tæplega 5,7 milljörðum króna, og jukust um rúmlega 12,1% á milli ára. Framlegð jókst lítillega og var um 71% af tekjum eða 27 milljónir evra, samanborið við 23,8 milljónir evra árið áður. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) nam 10,1 milljón evra, samanborið við 8,6 milljónir evra árið áður.

Hulda Hallgrímsdóttir, framkvæmdastjóri Nox Medical, segir að félagið hafi á undanförnum árum beint þróunarfjárfestingum sínum í skýja- og gervigreindarlausnir og nýlega fengið markaðsleyfi hjá Lyfjaeftirliti Bandaríkjanna (FDA) fyrir þær lausnir. Þá hafi félagið sett á markað stafrænt lækningatæki sem heitir Somryst, sem einnig hafi hlotið samþykki FDA. Það sé ætlað til meðferðar við langvarandi svefnleysi og byggi á hugrænni atferlismeðferð (CBT-I), sem miði að því að bæta svefn fólks sem glímir við svefnleysi.

„Þar sem félagið er hluti af Nox Health-samstæðunni, sem ásamt Nox Medical samanstendur af rekstri heilbrigðisþjónustu í Bandaríkjunum á sviði svefnlækninga, hefur félagið einstaklega gott aðgengi að miklu magni upplýsinga sem nýtast við framþróun gervigreindar í svefnlæknisfræði. Félagið er því sérstaklega vel í stakk búið til þess að nýta framfarir á þessu sviði til vöruþróunar og til að tryggja áfram gott markaðsaðgengi á helstu mörkuðum.“

Hulda segir að með nýjum tæknilausnum sé félagið nú í umbreytingu á viðskiptamódelum sínum og sé að bæta við þjónustulausnum fyrir svefngreiningar í Bandaríkjunum til viðbótar við sölu á mælitækjum. Félagið telji að miklir vaxtamöguleikar séu framundan fyrir lausnir félagsins, þá sérstaklega tengdar þjónustu með gervigreind og skýjalausnum til úrvinnslu gagna sem safnað er með mælitækjum þess.

„Framtíðin er björt hjá Nox og stefnir félagið á að umbylta greiningu og meðferð á svefntengdum sjúkdómum. Það er mikil vitundarvakning í heiminum um þá krónísku sjúkdóma sem svefnraskanir geta valdið og þá nauðsyn að einfalda greiningu og meðferð með tæknilausnum til þess að fleiri einstaklingar eigi möguleika á því að öðlast betri heilsu og á sama tíma lækka kostnað í heilbrigðiskerfinu.“

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér.