Jesper Buch, þekktur danskur frumkvöðull og fjárfestir, hagnaðist um 69 milljónir danskra króna á árinu 2024, samkvæmt ársreikningi eignarhaldsfélags hans. Um er að ræða um 1,3 milljarða íslenskra króna á gengi dagsins.
Í ársreikningnum sem viðskiptablaðið Børsen greinir frá, segir að meginuppistaðan í hagnaðinum sé tilkomin vegna sölu á hlut í einu af félögum í eignasafninu.
Buch staðfesti nýverið í samtali við Børsen að um væri að ræða sölu á hlut í veröndafyrirtækinu Treetops, sem hann fjárfesti í árið 2020. Hann hangaðist um 65 milljónir danskra króna á sölunni.
Hann lýsir fjárfestingunni einfaldlega sem „sinni bestu hingað til“ og bætti við í textaskilaboðum til Børsen:
„Það er einfaldlega frábært að upplifa hundraðfalda ávöxtun... ekki í fyrsta skipti, og ekki í það síðasta,“ segir í textaskilaboðum Buch.
Fyrirtækið Treetops, sem sérhæfir sig í hönnun og smíði verönda, var stofnað árið 2011 af þeim Ricki Kjeldsen og Dennis Povlsen.
Í apríl 2024 var greint frá því að Treetops hefði verið selt til írska byggingarisans Kingspan.
Kaupverðið var ekki gefið út opinberlega en vitað er að Buch fjárfesti í félaginu eftir að hann fékk sjálfur smíðaða verönd frá Treetops árið 2020. Sú fjárfesting er að reynast honum afar arðbær í dag.
Notar annað félag í sjónvarpsþáttunum
Í ársreikningi eignarhaldsfélags Jespers Buch kemur jafnframt fram að eigið fé félagsins sé komið í tæpar 62 milljónir danskra króna.
Þar má finna hluti í öðrum þekktum dönskum fyrirtækjum, þar á meðal Shaping New Tomorrow og samnýtingarforritinu Gomore.
Buch er þekktur sem fjárfestir úr danska sjónvarpsþættinum Løvens Hule, dansku útgáfunni af Shark Tank eða Dragons Den, þar sem hann fjárfestir í fjölda sprotafyrirtækja.
Mörg þeirra hafa farið í gegnum annað félag í hans eigu, Guerilla Capital, sem hann á ásamt hópi fjárfesta.