Frá því kísilmálmverksmiðja PCC á Bakka við Húsvík var gangsett í apríl 2018  hefur hún einungis skilað hagnaði á einu rekstrarári af sjö. Samanlagt tap af rekstrinum á árunum 2018 til með árinu 2024 nemur ríflega 30 milljörðum króna. Hönnunargalli í verksmiðjunni, heimsfaraldur, stríð í Úkraínu og undirboð frá Kína hafa haft áhrif á afkomuna á Bakka.

Kári Marís Guðmundsson, forstjóri PCC á Bakka.
Kári Marís Guðmundsson, forstjóri PCC á Bakka.

Nú styttist óðfluga í að Kísilmálmverksmiðju PCC á Bakka við Húsavík verði lokað tímabundið en það mun gerast í kringum 20. júlí að sögn Kára Marísar Guðmundssonar, forstjóra PCC BakkiSilicon hf. Hráefnin verða kláruð og í kjölfarið verður slökkt á verksmiðjunni og gengið frá.

„Það er frekar auðvelt að slökkva á verksmiðjunni og ræsa hana svo á ný,“ segir Kári og bætir því við að það sé ekki léttvæg ákvörðun að loka verksmiðjunni tímabundið. „Þetta er gríðarlegt högg og sérstaklega fyrir samfélagið á Húsavík og í Norðurþingi. Sveitarfélagið hefur miklar tekur af verksmiðjunni og þetta þýðir því að draga þarf saman í rekstrinum, sem er auðvitað afar slæmt.“

Að sögn Kára starfa um 120 manns hjá PCC á Bakka.

„Við sögðum upp áttatíu manns sem þýðir að um fjörutíu halda vinnunni. Þeir munu starfa hjá okkur í gegnum stöðvunina, við þrif og endurbætur.“

Spurður hvort og hvenær verksmiðjan verði ræst að nýju svarar Kári: „Ég held mér sé alveg óhætt að fullyrða að verksmiðjan verði ekki ræst að nýju fyrr en á næsta ári."

„Flestar uppsagnirnar taka gildi í lok ágúst og ég veit að margir af okkar starfsmönnum, sem hafa kannski verið hjá okkur í tvö til sjö ár, munu reyna að þreyja þorrann og bíða þar til verksmiðjan verður ræst á nýjan leik," segir Kári. „Ég geri mér aftur á móti grein fyrir því að það verður erfiðara eftir því sem það dregst á langinn að koma verksmiðjunni í gang.“

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér.