Íslenska framleiðslufyrirtækið Rotovia tapaði 8,4 milljónum evra á síðasta rekstrarári sem nær frá 1. október 2023 til 30. september 2024, eða sem nemur rúmlega 1,2 milljörðum króna.
Til samanburðar nam tapið 2,3 milljónum evra árið áður, sem nemur 344 milljónum króna. Tekjur námu 122 milljónum evra, sem nemur 18,2 milljörðum króna, samanborið við 137 milljóna evra veltu árið áður, eða sem nemur 20,4 milljörðum króna.
Rotovia samdi við Landsbankann á síðasta ári um endurfjármögnun á öllum skuldum félagsins. Lánasamningurinn nam allt að 10,7 milljörðum króna (72 milljónum evra).
Þá festi félagið einnig kaup á mexíkóska fyrirtækinu Ollin Plastics í október í fyrra og ná kaupin til næstkomandi rekstrarárs.
Rotovia á rætur að rekja til ársins 1984 þegar Sæplast hóf rekstur á Dalvík. Félagið var eitt af fyrstu íslensku fyrirtækjunum til að útvíkka starfsemi sína erlendis þegar það fór að flytja út vörur sínar og kaupa upp verksmiðjur erlendis.
Í dag rekur félagið tíu verksmiðjur í sjö löndum. Daði Valdimarsson er forstjóri Rotovia.