Ferðaþjónustufyrirtækið Travelshift tapaði tæplega 2,2 milljónum dala í fyrra, sem nemur um 298 milljónum króna, samanborið við 654 þúsund dala hagnað árið áður, sem nemur 89 milljónum króna.

Tekjur af bókunum námu 49,4 milljónum dala árið 2024, sem nemur um 6,8 milljörðum króna, og jukust um 5,9% milli ára. Framlegð var 27% en var 24% árið 2023.

Félagið eignfærði á árinu þróunarkostnað upp á 5,2 milljónir dala, sem nemur um 724 milljónum króna, en ári fyrr eignfærði félagið 7,4 milljóna dala þróunarkostnað, sem nemur einum milljarði króna. Kom það til lækkunar á launum og launatengdum gjöldum og öðrum rekstrarkostnaði.

Í skýrslu stjórnar segir að félagið haldi áfram að vaxa með viðskiptum í gegnum markaðstorgið Guide to Iceland en auk þess hafi verulegur vöxtur verið á bókunum Guide to Europe. Munurinn á hagnaði félagsins milli ára megi rekja til kostnaðar tengdan Guide to Europe. Markaðskostnaður hátt í þrefaldaðist milli ára og nam 6,8 milljónum dala, eða um 935 milljónum króna.

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér.