Samstæða Skinney-Þinganes, sem rekur m.a. útgerð og fiskvinnslu, hagnaðist um 639 milljónir króna í fyrra, samanborið við 3,3 milljarða hagnað árið 2023. Tekjur drógust saman um tæp 23% og námu 13,3 milljörðum króna.
Í skýrslu stjórnar segir að loðnubrestur og dráttur síldarvertíðar skýri að mestu lækkun tekna. Auk þess muni lítil úthlutun í loðnu jafnframt hafa áhrif á rekstur ársins 2025.
Unnið sé að því að styrkja stoðir rekstrarins, m.a. með kaupum á uppsjávarskipi sem afhent verður í nóvember 2025.
Lykiltölur / Skinney-Þinganes hf.
2023 | |||||||
17.264 | |||||||
18.354 | |||||||
48.759 | |||||||
3.334 |
Fréttin birtist fyrst í Viðskiptablaðinu, sem kom út sl. miðvikudag.