Upplýsingatæknifélagið APRÓ hefur á undanförnum tveimur árum fjárfest í þremur dótturfélögum. APRÓ var stofnað árið 2023 en á fyrsta starfsári sínu fjárfesti það í tveimur félögum; Prógramm ehf. og Andes ehf.

Félagið gekk síðan frá kaupum á hugbúnaðarfyrirtækinu Miracle ehf. í október 2024 en samhliða var greint frá því að fyrirtækin þrjú yrðu sameinuð undir nafninu APRÓ.

Samkvæmt ársreikningi APRÓ voru eignarhlutir móðurfélagsins í dóttufélögum í lok síðasta árs bókfærðir á 2.169 milljónir króna en voru bókfærðir á 1.320 milljónir í lok árs 2023.

Bókfært verð eignarhlutarins í Miracle er 835 milljónir króna en eignarhluturinn í Prógramm er bókfærður á 863 milljónir og eignarhluturinn í Andes er bókfærður á 470 milljónir.

Rekstrartekjur samstæðunnar námu 1.545 milljónum króna í fyrra en Miracle kom inn í samstæðuna 1. nóvember 2024. Tap ársins nam 65 milljónum króna en í skýrslu stjórnar segir að það skýrist aðallega af afskrift á viðskiptavild vegna kaupa á dótturfélögum.

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér.