Breska ríkisútvarpið, BBC, og sænska dagblaðið Aftonbladet hafa fjallað um mál Ásthildar Lóu Þórsdóttur, sem sagði af sér sem barnamálaráðherra í gær eftir að greint var frá því að hún hafi eignast barn með táningsdreng þegar hún var sjálf 23 ára.
Í fyrirsögn BBC segir að íslenskur ráðherra hafi eignast barn með táningi fyrir 30 árum hafi sagt af sér. Fyrirsögn Aftonbladet er afdráttarlausari en þar segir: Barnamálaráðherra eignast barn - með barni. Um sé að ræða 36 ára gamalt leyndarmál sem hafi skekið Ísland.
Fréttir BBC og Aftonbladet byggja á umfjöllun Ríkisútvarpsins, sem greindi fyrst frá málinu, og ummælin sem bæði Ásthildur Lóa og Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra létu falla í íslenskum fjölmiðlum.
Greint hefur verið frá því að Ásthildur Lóa, sem er í dag 58 ára, hafi verið 22 ára og drengurinn 15 ára þegar samband þeirra hófst en hún var á þeim tíma leiðbeinandi í trúarlegum samtökum sem drengurinn leitaði til. Ásthildur eignaðist barn ári síðar, þegar hún var 23 ára og drengurinn 16 ára.
Eins og áður segir sagði hún af sér sem ráðherra í gærkvöldi eftir að greint var frá málinu en mun áfram sitja sem þingmaður. Í viðtölum við fjölmiðla hefur Ásthildur Lóa sakað drenginn, sem í dag er um fimmtugt, um að hafa setið um sig og hún hafi ekki ráðið við aðstæður.
BBC bendir á, líkt og aðrir fjölmiðlar, að þó sjálfræðisaldurinn sé 15 ár hér á landi sé það ólöglegt að eiga samræði við barn undir 18 ára aldri ef um kennara eða leiðbeinanda er að ræða. Ásthildur Lóa neitaði því í yfirlýsingu í morgun að hún hafi verið leiðbeinandi drengsins og að hafa hindrað aðgengi hans að barni þeirra.
Þá er greint frá því að ríkisstjórnin hafi verið sökuð um að hafa brotið trúnað, þar sem Ásthildur Lóa fékk veður af erindi sem sent var í trúnaði til forsætisráðuneytisins.