ST eign­ar­halds­fé­lag ehf., sem er hluti af sam­stæðu Mó­kolls ehf. sem inniheldur m.a. Eykt, og Steypustöðina, hef­ur gert sam­komu­lag um kaup á öllu hluta­fé í Krafti ehf., söluaðila MAN, Palfinger og BucherMunicipal á Íslandi.

Samn­ing­ur­inn var und­ir­ritaður af Birni Erl­ings­syni, eig­anda Krafts, en kaup­in eru háð samþykki Sam­keppnis­eft­ir­lits­ins, að því er kemur fram í til­kynn­ingu.

Þess má geta að Styrkás náði samkomulagi um kaup á Krafti í fyrra en ákveðið var í janúar síðastliðnum að falla frá viðskiptunum í kjölfar þess að Samkeppniseftirlitið tilkynnti um að gögn bentu til neikvæðra áhrifa á samkeppni á mögulegum mörkuðum málsins.

Verður áfram sjálfstæð eining

Fram kemur að nýir eig­end­ur Krafts hyggist halda rekstri Krafts áfram sem sjálf­stæðri ein­ingu inn­an sam­stæðu Mó­kolls. Stefnt sé að því að styrkja stöðu fé­lags­ins enn frek­ar með því að efla þjón­ustu og horfa til nýrra markaða.

„Við lít­um á kaup­in á Krafti sem ein­stakt tæki­færi,“ seg­ir Pét­ur Guðmunds­son, eig­andi Mó­kolls ehf., í til­kynn­ing­unni. „Fé­lagið hef­ur byggt upp öfl­uga markaðsstöðu og við sjá­um marga mögu­leika til frek­ari vaxt­ar.“

Kraftur velti 2,4 milljörðum króna og skilaði hagnaði fyrir afskriftir (EBITDA) upp á 182 milljónir króna í fyrra.

„Kraft­ur hóf starf­semi árið 1966 og hef ég starfað hjá fé­lag­inu í yfir fjöru­tíu ár og gengt starfi fram­kvæmda­stjóra fé­lags­ins frá ár­inu 1996. Um­svif okk­ar hafa auk­ist jafnt og þétt í gegn­um tíðina og vörumerkj­um fjölgað,“ segir Björn Erlingsson, aðaleigandi Krafts.

„Á þess­um tíma­mót­um er ánægju­legt að af­henda keflið til nýs sterks eig­anda sem hef­ur mikla burði til að halda áfram að þjón­usta viðskipta­vini okk­ar. Framtíðin er björt enda hef­ur fé­lagið á að skipa úr­vals hópi starfs­fólks og býr að traust­um viðskipta­sam­bönd­um til ára­tuga.“

Ari­on banki, BBA/Fjeldco og Deloitte veittu kaup­anda ráðgjöf við viðskipt­in, en KPMG var ráðgjafi selj­anda.