Mats­fyrir­tækið Moo­dy´s hefur hækkað láns­hæfis­mat Lands­virkjunar úr Baa1 í A3. Sam­hliða hefur Moo­dy´s breytt horfum á láns­hæfi Lands­virkjunar úr já­kvæðum í stöðugar horfur.

Hækkunin kemur í kjöl­far hækkunar á láns­hæfis­mati ís­lenska ríkisins sem var hækkað úr A2 í A1 síðast­liðinn föstu­dag en láns­hæfis­mat Lands­virkjunar byggist að hluta til á láns­hæfis­mati ís­lenska ríkisins vegna eignar­halds þess og mikil­vægis Lands­virkjunar fyrir ís­lenskt efna­hags­líf.

„Mikil­vægi Lands­virkjunar fyrir ís­lenskt efna­hags­líf skýrist af því að Lands­virkjun vinnur um 70% af allri raf­orku á Ís­landi og meðal stærstu við­skipta­vina fyrir­tækisins eru al­þjóð­leg orku­sækin fyrir­tæki sem skila um þriðjungi af út­flutningi Ís­lands,“ segir í til­kynningu frá Lands­virkjun.

Að mati Moo­dys endur­speglar láns­hæfis­matið sterka stöðu Lands­virkjunar á ís­lenskum orku­markaði og góða fjár­hags­stöðu nú þegar fyrir­tækið stefnir á fram­kvæmdir við nýja virkjunar­kosti.

Moo­dys breytti horfum á láns­hæfi Land­virkjunar síðast í júlí á þessu ári úr stöðugum í já­kvæðar sam­hliða því að mat­fyrir­tækið færði grunn­ein­kunn Lands­virkjunar (e. The Baseline Credit Assess­ment, BCA) úr baa1 í baa3.

Í júlí sagði Moo­dys að láns­hæfis­ein­kunn Lands­virkjunar gæti hækkað ef láns­hæfis­ein­kunn ríkis­sjóðs hækkaði og ef sjóð­streymis- og skulda­kenni­tölur Lands­virkjunar héldu á­fram að vera sterkar.

Í lok árs í fyrra hækkaði S&P Global Ratings láns­hæfis­mat Lands­virkjunar um einn flokk, í A- úr BBB+, með stöðugum horfum.

Lands­virkjun hagnaðist um 209,5 milljónir dala, eða sem nemur nærri 29 milljörðum króna, á árinu 2023, sem er um 30% aukning frá fyrra ári.

Stjórn fyrir­tækisins lagði til að arður til ríkisins yrði upp á 20 milljarða króna líkt og í fyrra. Aðal­fundur Lands­virkjunar í apríl sam­þykkti síðan til­lögu stjórnar um að hækka arð­greiðsluna í 30 milljarða.

Eignir Lands­virkjunar voru bók­færðar á 3.614 milljónir dala eða um 492 milljarða króna í árs­lok 2023.