Matsfyrirtækið Moody’s hefur uppfært lánshæfismat fyrir ríkissjóð Ítalíu. Horfur eru nú jákvæðar en voru áður metnar stöðugar, sem þýðir að landið gæti átt von á hækkun á lánshæfi í náinni framtíð. Lánshæfiseinkunnin stendur í Baa3, en allt fyrir neðan það er rusleinkunn hjá Moody’s.
Í yfirlýsingu Moody’s kemur meðal annars fram að aukinn pólitískur stöðugleiki og bætt ríkisfjármál hafi leitt til breytingar á lánshæfismatinu. Með breytingunni nálgast Moody’s lánshæfismöt annarra matsfyrirtækja, líkt og S&P sem hækkaði lánshæfiseinkunn Ítalíu í apríl sl.
Þá virðast fjárfestar hafa aukna trú á stefnu ríkisstjórnar Giorgiu Meloni, en munur á ávöxtunarkröfu ítalskra og þýskra ríkisbréfa hefur helmingast frá því að hún tók við völdum árið 2022.
Þrátt fyrir batamerki eru áskoranir áfram til staðar. Skuldir Ítalíu nema enn yfir 130% af landsframleiðslu, hagvöxtur er veikur og þjóðin að eldast.