Fjölmörg fyrirtæki við Suðurlandsbraut hafa mótmælt áformum Reykjavíkurborgar um Borgarlínu á svæðinu. Þau segja að Borgarlínan henti svæðinu illa þar sem þjónusta svæðisins er aðallega sótt af akandi viðskiptavinum.
Lögfræðistofa Reykjavíkur skilaði inn umsögn við rammahluta fyrstu lotu Borgarlínunnar fyrir hönd Sýn, Lyfju, Samkaup, Ormsson, Lækninga og Skurðstofunnar. Þar er lýst yfir verulegum áhyggjum af aðgengi viðskiptavina að verslun og þjónustu.
„Miðað við þá hugsun að fátt eigi að stöðva umferðarhraða Borgarlínu og að samgöngur með Borgarlínu verði eins skilvirkar og mögulegt er, þá skýtur skökku við að staðsetja hana við helsta verslunarsvæði Reykvíkinga sem treystir aðallega á akandi viðskiptavini“, segir í umsögninni.
„Um er að ræða verslunarsvæði sem er aðallega sótt af akandi viðskiptavinum og þó svo að ætlunin sé að koma flestum til og frá vinnu með almenningssamgöngum þá má það ekki hafa þá afleiðingu að atvinnustarfsemin, þ.á.m. verslunin, verði fyrir tekjutapi sem má rekja til færri viðskiptavina vegna þess að þeir komast illa að verslunum og fara annað.“
Þá segja fyrirtækin afar mikilvægt að ekki verði hróflað við þeim fáu bílastæðum sem þar eru nú þegar.
Fyrirtækin segja að svo stöddu sé ekki unnt að lýsa öðru en mótmælum við því að Borgarlínan fari um Suðurlandsbraut. Þau telja að miklu frekar ætti að nýta hinar þegar stóru umferðaræðar í gegnum Reykjavík, s.s. Sæbraut, Miklubraut og Kringlumýrarbraut.
Almenn athugasemd sé gerð hvað borgarlínustöðvar á svæðinu varðar að þær takmarki ekki umferð um Lágmúla eða Suðurlandsbraut.
„Þess má geta að fyrir nokkrum misserum var lokað á aðgengi inn Lagmúla að norðan af Háaleitisbraut til austurs og það hefur sannalega haft neikvæð áhrif á verslun. Er því fyrirséð að það verði neikvæðar fjárhagslegar afleiðingar með frekari takmörkunum.“