Suðurkóreski bílaframleiðandinn Hyundai mun koma til með að tilkynna hátt í 20 milljarða dala fjárfestingu og endurskipulagningu á bandarískum markaði. Fjárfestingin felur meðal annars í sér fimm milljarða dala stálverksmiðju í Louisiana-ríki.

Samkvæmt fréttamiðlinum CNBC er búist við sameiginlegri tilkynningu í dag frá Donald Trump Bandaríkjaforseta, Euisun Chung forseta Hyundai og Jeff Landry ríkisstjóra Louisiana.

Umrædd verksmiðja mun skapa um 1.400 störf og mun sjá um að framleiða næstu kynslóð af stáli sem notað verður í bandarískum bílaverksmiðjum Hyundai til að framleiða rafbíla.

Tilkynning Hyundai kemur á tíma þegar stórar alþjóðlegar samsteypur eltast nú við að forðast tolla og viðskiptastríð. Fyrirtæki eins og TSMC frá Taívan og Softbank frá Japan hafa einnig heimsótt Hvíta húsið á síðustu tveimur mánuðum til að kynna eigin fjárfestingar.