Brottrekstur Lars Fruergaard Jørgensen, forstjóra danska lyfjarisans Novo Nordisk, hefur vakið sterkar tilfinningar innan fyrirtækisins samkvæmt danska viðskiptamiðlinum Børsen.
Nú nýverið stóðu um 400 stjórnendur lyfjafyrirtækisins upp í nokkrar mínútur og kvöddu forstjórann með löngu lófaklappi. Lýsingin á þessari móttöku hefur verið kölluð „stormur af ást“ af starfsmönnum.
Jørgensen, sem hefur starfað hjá Novo Nordisk frá 1991 og gegnt forstjórastöðu frá árinu 2017, segir sjálfur að uppsögnin hafi komið sér í opna skjöldu líkt og öðrum starfsmönnum.
Viðbrögðin hafa verið gríðarleg en yfir 39.000 manns hafa sýnt viðbrögð við kveðjufærslu Jørgensen, LinkedIn. Þá hafa yfir 1.400 skrifað athugasemd, þar á meðal fjölmargir núverandi og fyrrverandi starfsmenn.
Valdamikill leiðtogi
„Lars skilur eftir sig djúp spor af heiðarleika, einurð og eljusemi sem við munum halda áfram að rækta sem leiðtogar og fyrirtæki,“ skrifaði Torben Bundgård, varaforseti Novo Nordisk, í kveðju sinni.
Aðrir stjórnendur lýsa honum sem „innblæstri“ og „ótrúlegum leiðtoga“.
Á sama tíma ríkir enn óvissa innan fyrirtækisins, þar sem enginn arftaki hefur verið kynntur til leiks.
Markaðsvirði Novo Nordisk hefur lækkað um 55% frá hápunkti sínum í júní í fyrra samhliða því að félagið hefur verið að tapa markaðshlutdeild í Bandaríkjunum í samkeppni við Eli Lilly, einkum á sviði þyngdarstjórnunarlyfja.
Sú staðreynd að Novo Nordisk er nú með 30.000 fleiri starfsmenn en Eli Lilly, þrátt fyrir svipaða veltu, hefur vakið vangaveltur um að uppsagnir kunni að vera á næsta leiti.
Í samtali við danska blaðið Børsen sagði Simon Birksø Larsen, sérfræðingur í stefnumótun lyfjafyrirtækja, að „stórar skipulagsbreytingar“ séu líklegar í kjölfar þessa valdamikla skiptis.
Fyrirtækið hefur staðfest að ráðningar í sumum deildum hafi verið frystar, en svarar ekki beint spurningum um hvort uppsagnir séu yfirvofandi.
Hægt er að sjá myndband af lófaklappi starfsmanna og stjórnenda hér að neðan.