Á Útboðsþingi Samtaka iðnaðarins í síðustu viku, sem fór fram í Háteig á Grand Hótel Reykjavík, kynntu fulltrúar tíu opinberra aðila verklegar framkvæmdir fyrir samtals 128 milljarða króna á árinu. Það er hækkun um 49 milljarða frá fyrra ári.
Vegagerðin var með hæstu upphæðina í fyrirhugaðar framkvæmdir eða 21,9 milljarða, þar næst Isavia fyrir 20,5 milljarða, og loks Reykjavíkurborg með 20 milljarða. Síðan kom Framkvæmdasýsla ríkisins með 19,7 milljarða, þar næst Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu fyrir 16,4 milljarða, Landsnet fyrir 9,2 milljarða og loks Veitur fyrir 8,7 milljarða. Þar á eftir komu svo Landsvirkjun og Orka náttúrunnar, hvort um sig með 4,4 milljarða og loks Faxaflóahafnir með 2,7 milljarða.
© Haraldur Guðjónsson (VB MYND/hag)
© Haraldur Guðjónsson (VB MYND/hag)
© Haraldur Guðjónsson (VB MYND/hag)
Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, var kankvís á svip þegar hann opnaði útboðsþing samtakanna.
© Haraldur Guðjónsson (VB MYND/hag)
Sigurður R. Ragnarsson, forstjóri Íslenskra aðalverktaka, virtist þó ekki alveg jafnánægður þrátt fyrir 49 milljarða aukningu í væntum útboðum verkkaupa á árinu.
© Haraldur Guðjónsson (VB MYND/hag)
Bergþóra Þorkellsdóttir vegamálastjóri, eða eins og embættið heitir í dag forstjóri Vegagerðarinnar, lét sig ekki vanta en stofnunin sér fram á að vera stærst í verkkaupum ársins, eða fyrir nærri 22 milljarða.
© Haraldur Guðjónsson (VB MYND/hag)
Andri Daði Aðalsteinsson er forstöðumaður sölu- og markaðssviðs Límtré Vírnets, sem ætti að fá eitthvað að gera við fyrirhuguð verkkaup ársins.
© Haraldur Guðjónsson (VB MYND/hag)
Marta Rós Karlsdóttir, forstöðumaður auðlinda og tækniþróunar hjá Orku náttúrunnar, mætti, en félagið er með útboð fyrir um 4,4 milljarða á árinu.
© Haraldur Guðjónsson (VB MYND/hag)
Guðjón Jónsson sér um öryggismál og stjórnun í framkvæmdastjórn VSÓ Ráðgjafar, en verkfræðifyrirtækið mun eflaust hafa eitthvað upp úr krafsinu í verkkaupum ársins.
© Haraldur Guðjónsson (VB MYND/hag)
© Haraldur Guðjónsson (VB MYND/hag)
Jón Þorvaldsson, aðstoðarforstjóri Faxaflóahafna, en opinbera fyrirtækið ber ábyrgð á útboðum fyrir 2,7 milljarða sem var lægsta fjárhæðin frá einni tiltekinni einingu á þinginu, sat með Maren Lind Másdóttur, deildarstjóra farangurskerfa ISAVIA.
© Haraldur Guðjónsson (VB MYND/hag)
Guðrún Ingvarsdóttir, forstjóri Framkvæmdasýslu ríkisins, fylgdist vel með, en útboð á vegum stofnunar hennar nema hátt í 20 milljarða á árinu.
© Haraldur Guðjónsson (VB MYND/hag)
Ingólfur Bender hagfræðingur Samtaka iðnaðarins.
© Haraldur Guðjónsson (VB MYND/hag)
Dagmar Þorsteinsdóttir framkvæmdastjóri HBH Byggir.
© Haraldur Guðjónsson (VB MYND/hag)
© Haraldur Guðjónsson (VB MYND/hag)
© Haraldur Guðjónsson (VB MYND/hag)
Dagur Bergþóruson Eggertsson er oddviti Samfylkingarinnar og borgarstjórinn í Reykjavík.
© Haraldur Guðjónsson (VB MYND/hag)
Björt Ólafsdóttir, fyrrverandi ráðherra og formaður Bjartrar framtíðar.