N1 mun á næstu mánuðum stækka og uppfæra hraðhleðslustöðvanet sitt á landinu. Alls stefnir félagið á að taka 30 nýjar hraðhleðslustöðvar í notkun, sem allar verða með 150 kW hleðslugetu, á komandi mánuðum. Þær verða við eftirfarandi þjónustustöðvar N1:
- Borgarnes
- Hvolsvöllur
- Akureyri
- Vík
- Blönduós
- Egilsstaðir
- Ártúnshöfði, Reykjavík
- Flugvellir, Reykjanesbær
- Háholt, Mosfellsbær
Fyrir rekur N1 hraðhleðslustöðvar með ýmist 50 kW eða 150 kW hleðslugetu á Blönduósi, Borgarnesi, Egilsstöðum, Háholti, Hvolsvelli, Ísafirði, Kirkjubæjarklaustri, Sauðárkróki, Skógarlind, Staðarskála og Vík. Auk þess má finna Tesla-hleðslustöðvar á N1 Fossvogi og Staðarskála.
Eftir uppfærsluna verða allar hraðhleðslustöðvar við þjónustustöðvar N1 með 150 kW hleðslugetu. „Slíkar hleðslustöðvar henta vel til hleðslu á stærri ökutækjum eins og þeirra sem notaðar eru til vöruflutninga.“
„Með þessari uppbyggingu viljum við auðvelda fólki að ferðast umhverfisvænt um landið á eins skjótan og hagkvæman hátt og mögulegt er. Nýjar öflugar hraðhleðslustöðvar, víðsvegar um landið, munu gera lengri ferðalög á rafbílum að enn ákjósanlegri valkosti og spara vegfarendum bæði tíma við hleðsluna og áhyggjur,“ segir Hinrik Örn Bjarnason, framkvæmdastjóri N1.