Fjármálaráðuneytið hefur birt sundurliðaðan lista yfir endanlega kaupendur í nýafstöðnu útboði á hlutum í Íslandsbanka hf., þar sem fram koma nöfn, kennitölur og kaupvirði hvers og eins aðila.
Birtingin er í samræmi við ákvæði laga nr. 80/2024 sem leggja ríka áherslu á gagnsæi við framkvæmd ríkisútboða. Samkvæmt tilkynningu ráðuneytisins lauk útboðinu með úthlutun alls 850 milljóna hluta til rúmlega 31 þúsund einstaklinga og 56 fagfjárfesta.
„Meginreglur útboðsins um gagnsæi, hlutlægni, jafnræði og hagkvæmni skiluðu vel heppnuðu útboði fyrir ríkissjóð. Góð þátttaka í útboðinu endurspeglar traust almennings á ferlinu og framkvæmdinni,“ segir Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, í tilkynningu.
„Útboðið markar ákveðin kaflaskil þar sem ríkissjóður er ekki lengur hluthafi í bankanum og dregur úr þeirri áhættu sem felst í eignarhaldi á fjármálafyrirtækjum. Með sölunni styrkjum við stöðu ríkissjóðs og búum til svigrúm til þess að ráðast í nauðsynlegar innviðafjárfestingar.“
Nafnalistann má nálgast hér.