Agaráð kínverska kommúnistaflokksins (e. Central Commission for Discipline Inspection) hefur uppfært reglur um sparneytni ríkisstarfsmanna og eyðslu á viðburðum.

Að því er segir í frétt Wall Street Journal verða blómaskreytingar t.a.m. bannaðar á vinnufundum, óheimilt verður að fara í kostnaðarsamar framkvæmdir undir því yfirskini að um endurbætur sé að ræða, og ríkisstarfsmönnum verður ekki heimilt að nota vinnubifreiðar til einkanota. Á viðburðum á vegum hins opinbera verður þá bannað að eyða um efni fram í veitingar auk þess sem áfengi og sígarettur verða alfarið bannaðar.

Nýju reglurnar koma í kjölfar atviks í kínversku borginni Xinyang í mars þar sem hópur fimm ríkisstarfsmanna, sem höfðu verið á námskeiði um sparneytni, drukku óhóflegt magn af kínverska brennivíninu baijiu sem leiddi til þess að einn lést.