Erlend netverslun Íslendinga nam 3,8 milljörðum króna í ágúst samkvæmt netverslunarvísi Rannsóknarseturs verslunarinnar. Þar segir að aukningin sem af er ári sé um 40% en gera megi ráð fyrir allt að 60% aukningu í lok árs miðað við 2023.

Íslendingar hafa þá eytt yfir 23 milljörðum í netverslun það sem af er ári en mikil aukning hefur átt sér stað frá vormánuðum.

Fram kemur í greiningu RSV að verslun með fatnað og skó sé enn stærsti liðurinn í erlendri netverslun Íslendinga. Hlutfallsleg aukning síðastliðinn mánuð hefur þó verið mest í verslun með byggingavörur.

„Athygli vekur að netverslun frá Eistlandi hefur næstum 150 faldast frá sama tímabili í fyrra, farið úr að meðaltali 5,9 milljónum á mánuði upp í tæpar 850 milljónir í ágúst sl. og nemur netverslun þaðan það sem af er ári um 2,7 milljörðum en gæti náð 6 milljörðum sé aukningin komin til að vera,“ segir í greiningu.

Mest sé þá flutt inn af byggingarvörum, fatnaði og skóm en einnig hefur orðið veruleg aukning í innflutningi í öðrum vöruflokkum svo sem heimilisbúnaði, vefnaðarvöru og raftækjum.