Eldur Ólafsson, forstjóri málmleitarfélagsins Amaroq Minerals, segist hafa neyðst til að selja eignarhlut sinn í Kerecis í kjölfar þess að hafa fengið yfir hundrað milljóna króna rukkun frá Skattinum árið 2017, sex árum áður en Kerecis var selt fyrir tæplega 180 milljarða króna.
Á endanum fékk Eldur skattinn endurgreiddan eftir að hafa farið með málið fyrir öll dómsstig. Hann greinir frá þessu í nýjasta þætti Þjóðmála þar sem hann ræddi ítarlega um starfsemi Amaroq.
Meðal fyrstu hluthafa Kerecis
Eldur upplýsti í þættinum um að hann hefði verið meðal fyrstu hluthafa Kerecis en hann starfaði með Guðmundi Fertram Sigurjónssyni, stofnanda og forstjóra Kerecis, í verkefnum í Filippseyjum og Kína fyrir Geysi Green Energy.
Þegar Eldur vann að því að skrá Amaroq, sem hét þá Alopex Gold, á hlutabréfamarkað í Kanada árið 2017 fékk hann bréf frá skattyfirvöldum hér á landi. Þar hafi hann verið krafinn um yfir hundrað milljónir króna í skattgreiðslur hér á landi eftir að hafa starfað erlendis í nokkurn tíma.
„Þegar ég flutti [á sínum tíma] voru gjaldeyrislög. Ég var að fara á þá vegferð að vera með skráð félag, hafði passað mig að gera allt eftir kúnstarinnar reglum og gera það vel og rétt. Ég gat sýnt fram á að ég hafði gert allt rétt,“ sagði Eldur.
„Ég er bara af einhverju skattaembætti látinn borga hundrað og eitthvað milljónir í skatt. Í fyrsta lagi hefði ég helst þurft að geta lagt þennan pening inn í [Amaroq] þegar ég var að skrá það.“
Eldur, sem var með barn á leiðinni, sagðist ekki hafa átt margar eignir á þeim tíma en meðal þeirra voru fasteign, bréf í Alopex sem voru torseljanleg og eignarhlutur í Kerecis. Hann hafi því þurft að selja hlut sinn í Kerecis til að borga skattinn.
„Svo fer ég í gegnum öll dómsstigin og vinn þetta enda var drottningin í Bretlandi búinn að stimpla að ég hafði staðið í skilum á skatti þar. Ég vinn málið og jú jú, ég fæ þennan pening til baka með einhverjum vöxtum sem fóru reyndar beint aftur í Amaroq.“
Kerecis var selt á tæplega 180 milljarða króna sumarið 2023 til Coloplast. Virði íslenska lækningavörufyrirtækisins hafði hækkað umtalsvert í virði á árunum fram að sölunni.
„Kerfið á Íslandi þarf að vera með“
Eldur segi ofangreinda sögu vera dæmi um þátt sem mætti betur fara þegar kemur að nýsköpunarumhverfinu og atvinnulífinu hér á landi. „Kerfið á Íslandi þarf að vera með.“
Í þeim efnum nefndi hann einnig að hann hafi nýtt kauprétti fyrr á árinu sem hann hafði fengið fyrir að uppfyla árangurstengd skilyrði hjá Amaroq árið 2023.
„Ég má ekki gera neitt með þessa kauprétti, ég þarf bara að halda á þeim. Þegar ég fæ þá, þá þarf ég [samt] að borga skatt upp á hundrað milljónir,“ segir Eldur en bætir við að undirliggjandi verðmætin sem hann heldur enn á, þ.e. hlutabréf í Amaroq, geti þess vegna sveiflast niður á við í verði.
„Það eru svona þættir sem ganga ekki upp á Íslandi. Ef við erum að skoða að ráða fólk, það má koma hingað til Íslands sem sérfræðingar á einhverju miklu lægri sköttum en ég er greiði sem forstjóri af því það eru [erlendir] sérfræðingar. En á ég þá bara að fara til Ítalíu?
Ef við ætlum að vera land sem ætlar að byggja undir mikinn vöxt, öflugt atvinnulíf og vera sem best í þessu sem allir vilja þá þýðir það að það [...] þarf að vera fyrir alla.“
Eldur ræðir um sölu sína í Kerecis frá og gagnrýni á skattafyrirkomulag á hér á landi frá 51:30-54:50.