Hækkandi verðlag hefur áhrif víða en af þeim sökum hafa Neytendasamtökin ákveðið að hækka félagsgjöld sín um 22%.
Þetta kemur fram í Neytendablaðinu en þar segir að þrátt fyrir aðhaldssaman rekstur og styrka stjórn fjármála taldi stjórn Samtakanna óhjákvæmilegt að hækka félagsgjöldin í upphafi árs.

Félagsgjöld Samtakanna fóru úr 6.500 kr. Í 7.900 krónur sem nemur um 22% hækkun. Stjórnin minnir félagsmenn á að gjöld hafi verið óbreytt frá árinu 2020 og að almennt verðlag hafi hækkað um 32% á sama tímabili.
„Stjórn samtakanna vonar að félagar samtakanna sýni hækkuninni skilning,” segir í Neytendablaðinu sem kom út á dögunum.