Neytendastofa fylgdi nýlega eftir ábendingum um tungumálanotkun á veitingastöðum í miðbæ Reykjavíkur, m.a. vegna viljayfirlýsingar Menningar- og viðskiptaráðherra og Neytendastofu.
Ákveðið var að byrja á því að skoða matseðla og markaðsefni veitingastaða í miðbænum en kveðið er á um að matseðlar skuli vera aðgengilegir við inngöngudyr og að markaðsefni sé á íslensku.
„Tekin var skoðun á 83 veitingastöðum og kom í ljós að aðeins tveir höfðu engan matseðil við inngöngudyr. Algengt var að matseðill væri birtur á íslensku og erlendu tungumáli en þó voru gerðar athugasemdir við að 34 veitingastaðir birtu matseðil og annað kynningarefni bara á ensku,“ segir á síðu Neytendastofu.
Þessu til viðbótar voru gerðar athugasemdir við að sex veitingastaðir sem höfðu matseðla sýnilega á íslensku birtu annað kynningarefni eingöngu á ensku. Í síðastnefnda tilvikinu sendi Neytendastofa veitingastöðunum leiðbeiningar um skyldu til að notast við íslensku í markaðsefni.
Þegar búið var að fylgja eftir hjá þeim 36 veitingastöðum þar sem matseðill var ekki sýnilegur eða aðeins sýnilegur á ensku höfðu 18 gert breytingar og birta nú matseðil á íslensku.