Heimar hf. hafa undirritað lánasamning við Norræna fjárfestingarbankann (NIB) um 4,5 milljarða verðtryggt lán til 12 ára.
Samkvæmt tilkynningum frá Heimum er lánið veitt til fjármögnunar á þremur sjálfbærum og mikilvægum innviðaverkefnum Heima; heilsukjarnanum Sunnuhlíð á Akureyri, stækkun á hjúkrunarheimilinu Sóltúni í Reykjavík og Silfursmári 12, sem er ný umhverfisvottuð skrifstofubygging í Kópavogi.
„Við erum afar ánægð með að skýr stefna Heima og framkvæmd hennar á undanförnum árum fái viðurkenningu frá einni fremstu fjármálastofnun Norðurlanda og Eystrasaltsríkja. Með vaxandi áhuga erlendra fjárfesta er þessi áfangi mikilvægur til að auka fjölbreytni í fjármögnun okkar og styðja áframhaldandi arðbæran vöxt kjarnastarfsemi okkar,“ segir Halldór Benjamín Þorbergsson, forstjóri Heima.
„Við erum ánægð með að gefa út fyrstu ISK-skuldabréf NIB í tvo áratugi og þökkum fjárfestum fyrir sterkan áhuga. Með því að styðja þessi fasteignaverkefni erum við að skapa nauðsynlega innviði sem bæta heilbrigðisþjónustu, auka aðstöðu fyrir eldri borgara og efla efnahagslega starfsemi á Íslandi,“ segir André Küüsvek, forstjóri og framkvæmdastjóri NIB.
Verkefnin eru eftirfarandi:
Sunnuhlíð 12 – endurbætur
Undanfarin ár hafa Heimar verið að umbreyta fyrrum verslunarmiðstöð í nútímalega 4.830 m² heilbrigðis- og læknamiðstöð, með 820 m² viðbyggingu. Húsnæðið hýsir nú bæði opinbera og einkarekna heilbrigðisþjónustu og er eina sérhæfða heilsugæslustöðin á svæðinu, sem dregur m.a. úr þörf sjúklinga fyrir að ferðast til Reykjavíkur. Húsið var tekið í fulla notkun í júní 2024 og hefur starfsemin í húsinu orðið lykilþáttur í heilbrigðisþjónustu á Norðurlandi.
Sóltún 2 – Stækkun hjúkrunarheimilis
Lánið mun einnig fjármagna stækkun hjúkrunarheimilisins Sóltúns í Reykjavík en stærð þess verður aukin úr 6.870 m² í 10.360 m² og munu 67 ný hjúkrunarrými bætast við þau 92 sem fyrir eru. Framkvæmdirnar munu hafa í för með sér endurnýjun á hjúkrunarheimilinu og kemur til með að mæta vaxandi eftirspurn eftir hjúkrunarþjónustu fyrir eldri borgara. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist á árinu 2025 og er áætlað að þeim ljúki seint á árinu 2027.