Norræni fjárfestingarbankinn (NIB) hefur undirritað 50 milljóna evra fjárfestingarlán, eða sem nemur yfir 7 milljörðum króna, til Embla Medical, móðurfélags Össurar, til að fjármagna rannsóknar- og þróunaráætlun félagsins.
Lánið er til sjö ára og styður Emblu Medical í að þróa nýjar læknisfræðilegar lausnir sem auka hreyfanleika og lífsgæði fólks sem hefur misst útlimi eða býr við skerta hreyfigetu.
Rannsóknar- og þróunaráætlun Emblu miðar einkum að því að beita nýjustu tækni til að létta líf þeirra einstaklinga sem búa við skerta hreyfigetu. Fyrirtækið hefur nýlega sett á markað nýjungar á borð við vatnsheldan hnélið, framleiddan úr lífefnum og vélrænan fót sem býður upp á aukinn sveigjanleika, jafnvægi og aðlögunarhæfni fyrir notendur með takmarkaða hreyfigetu.
Í tilkynningu segir að með þessari fjármögnun muni Embla Medical efla vörusafn sitt enn frekar en meirihluti rannsókna- og þróunarstarfs fer fram í höfuðstöðvum fyrirtækisins í Reykjavík.
„Stefna NIB um að fjármagna sjálfbæra framtíð og styrkja samfélög okkar er samofin markmiði Emblu um að auka lífsgæði með nýsköpun. Þessi fjárfesting styður nýjustu rannsóknir sem gagnast sjúklingum með beinum hætti og flýta fyrir þróun á læknisfræðilegri tækni sem breytir lífi fólks,“ segir André Küüsvek, forstjóri NIB.