Flugfélagið Niceair hefur flug til Alicante og Dusseldorf frá Akureyrarflugvelli í vor. Flogið verður vikulega á báða staði, en flug til Alicante hefst 11. apríl en 6. maí til Dusseldorf.
„Við erum að bjóða nýjan áfangastað í sólina frá Akureyri, en við munum gera hlé á flugi til Tenerife á sama tíma. Alicante er mjög góð gátt inn í suður Spán þar sem Torrevieja, Benidorm og Valencia eru öll skammt frá,“ segir Helgi Eysteinsson, sölu- og markaðsstjóri Niceair, í tilkynningu.
„Dusseldorf býður síðan í senn frábæra tengimöguleika um allan heim og stutt er til Luxemborgar, Belgíu og Hollands, auk þess sem Köln og Dusseldorf eru fallegar miðaldaborgir og vinsælir áfangastaðir. Þá liggur Dusseldorf í hjarta Rheinland-Westfalen, sem er stórt upptökusvæði fyrir Íslandsfara frá Þýskalandi.”
Niceair hóf flug til Danmerkur og Spánar frá Akureyri í byrjun júní. Sætanýting hefur verið um 73% frá upphafi. Flugfélagið segir að reksturinn hafi gengið umfram væntingar.
Eigendur félagsins eru mörg stærri fyrirtækja á Norðurlandi, þmt Höldur, Kaldbakur, KEA, Rafeyri, Frost ofl. Framkvæmdastjóri er Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson.