Stjórnendur Nike segja að íþróttavörufyrirtækið muni reiða sig minna á framleiðslu vara í Kína en tollar Donalds Trumps á helstu viðskiptalönd Bandaríkjanna gætu kostað fyrirtækið hátt í milljarð dala aukalega á þessu ári.
Á vef BBC segir að Nike hafi tilkynnt verðhækkanir í síðasta mánuði fyrir júní, nokkrum vikum eftir að Adidas gerði slíkt hið sama.
Tekjur Nike á fjórða ársfjórðungi síðasta árs námu rúmlega 11 milljörðum dala og hafa ekki verið lægri síðan á þriðja ársfjórðungi árið 2022. Hagnaður Nike síðustu þrjá mánuði var þó hærri en gert var ráð fyrir.
Matthew Friend, fjármálastjóri Nike, segir að fyrirtækið muni flytja hluta framleiðslu frá Kína til annarra landa til að bregðast við tollastríði Donalds Trumps. Rúmlega 16% af öllum Nike-skóm sem enda á bandarískum markaði eru framleiddir í Kína.