Mads Nipper, forstjóri Ørsted, stærsta orkufyrirtæki Danmerkur, hefur ákveðið að segja upp störfum eftir fjögurra ára stjórnartíð sem einkenndist af miklum áskorunum.
Nipper, sem er 59 ára gamall, hefur leitt fyrirtækið gegnum erfiða tíma en í síðustu viku var greint frá því að félagið þyrfti að afskrifa um 12,1 milljarð danskra króna eða um 236 milljarða íslenskra króna í tengslum við vindmylluverkefni sín við strendur Bandaríkjanna.
Síðasta haust þurfti Ørsted að afskrifa 26,8 milljarða danskra króna eða um 546 milljarða íslenskra króna í tengslum við vindmylluverkefni sín vestanhafs.
Afskriftir, gengishrun og eignasala
Hlutabréfaverð félagsins hefur lækkað um 84% síðastliðin fjögur ár, ef miðað er við gengi félagsins í byrjun janúar 2021 þegar það var á hápunkti.
Þá hefur Ørsted þurft að selja eignir og hluti til að mæta því tapi sem félagið hefur orðið fyrir í Bandaríkjunum.
Olíufyrirtækið Equinor, sem er í meirihlutaeigu norska ríkisins, á nú um 9,8% hlut í Ørsted eftir að félagið keypti um 41,2 milljóna danskra króna hlut í október í fyrra.
Í lok október í fyrra seldi félagið einnig eignarhluti í vindmylluverkefnum sínum við strendur Bretlandseyja.
Kanadíska fjárfestingafélagið Brookfield keypti um 12,45% hlut í fjórum vindmylluverkefnum á tæpa 16 milljarða danskra króna sem samsvarar um 318 milljörðum íslenskra króna.
Þörf á nýjum leiðtogastíl
Í færslu á LinkedIn lýsti Nipper tímabilinu sem bæði uppbyggjandi og hvetjandi en viðurkenndi að hans leiðtogastíll hentaði ekki lengur framtíðarþörfum fyrirtækisins.
Nipper sagði að það hefði verið „forréttindi“ að leiða Ørsted, en útskýrði einnig að fyrirtækið þyrfti nú annars konar færniþekkingu í framtíðinni, með aukinni áherslu á stefnumótun iðnaðarins, viðskiptavinamiðlun og nýsköpun.
Stjórnir Ørsted og Nipper komust að þeirri niðurstöðu að það væri rétt að finna nýjan forstjóra í þau verkefni.
Rasmus Errboe, núverandi aðstoðarframkvæmdastjóri og viðskiptastjóri Ørsted, mun taka við forstjórastöðunni frá og með 1. febrúar.
Nipper lýsti Errboe sem réttum arftaka og benti á að hann hefði þá færni og reynslu sem nauðsynleg er til að leiða Ørsted áfram.
Í lok færslunnar lýsti Nipper því hversu spenntur hann væri fyrir að eyða meiri tíma í stjórnunarstörf hjá FLSmidth og skoða aðra möguleika í framtíðinni.