Við­skipta­vett­vangurinn Nor­d­net skilaði 1,8 milljörðum danskra króna í hagnað í fyrra sem sam­svarar um 35 milljörðum ís­lenskra króna á gengi dagsins.

Sam­kvæmt Børsen er við­skipta­vett­vangurinn gríðar­lega vinsæll meðal einka­fjár­festa og stefnir félagið á að hefja starf­semi í Þýska­landi á árinu en það yrði fyrsta skref félagsins út fyrir Norður­löndin.

Sam­kvæmt ný­birtu upp­gjöri félagsins er áhugi á fjár­festingum að aukast á Norður­löndunum og sýndi félagið fram á áfram­haldandi vöxt á mörkuðum sínum í Dan­mörku, Svíþjóð, Noregi og Finn­landi.

Í Dan­mörku fjölgaði við­skipta­vinum um 100 þúsund á síðasta ári, sem er 20 pró­senta aukning, og eru danskir við­skipta­vinir Nor­d­net nú orðnir 528 þúsund.

Sam­kvæmt árs­reikningi Nor­d­net hafa danskir við­skipta­vinir fjár­fest sam­tals 170 milljarða danskra króna í gegnum vett­vanginn, eða að meðaltali 322 þúsund danskar krónur á hvern við­skipta­vin.

Novo Nor­disk er vinsælasta hluta­bréfið meðal danskra við­skipta­vina Nor­d­net, en vinsældir félagsins drógust þó saman á seinni hluta ársins 2024.

Þrátt fyrir það hefur áhugi danskra fjár­festa einnig beinst að bandarískum tækni­risum á borð við Tesla, App­le, Micros­oft, Amazon og Nvidia.

„Árið 2025 sýna fjár­festar áfram áhuga á bandarískum hluta­bréfum og vonast jafn­framt til að evrópskur markaður, þar á meðal danskur, taki við sér,“ segir Per Han­sen aðal­hag­fræðingur Nor­d­net.

Árs­reikningurinn leiðir í ljós að Nor­d­net hefur tvær megin­tekju­lindir: þóknanir vegna við­skipta og vextir af fjár­magni sem við­skipta­vinir leggja inn eða lána til skulda og fjár­festinga.

Tekjur af þóknunum námu um 1,6 milljörðum danskra króna, en vextir skiluðu 1,7 milljörðum danskra króna.

Stækkun Nor­d­net til Þýska­lands markar tíma­mót fyrir fyrir­tækið, þar sem þetta er fyrsta skrefið utan Norður­landa.

Með þessu hyggst Nor­d­net sækja enn frekar fram á alþjóða­markaði og styrkja stöðu sína sem leiðandi vett­vangur fyrir einka­fjár­festa.