Norski olíusjóðurinn mun kjósa gegn 46 milljarða dala launapakka Elon Musk hjá Tesla en launapakkinn er nú í höndum hluthafa eftir að dómstóll í Delaware ógilti launapakkann í byrjun árs.
Upphaflegi launapakkinn hljóðaði upp á 55,8 milljarða dali, sem samsvarar um 7.780 milljörðum króna, en núverandi launapakki hljóðar upp á 6.414 milljarða á gengi dagsins.
Olíusjóðurinn segir í tilkynningu að stærð launapakkans sé áhyggjuefni en sjóðurinn átti um 1% hlut í Tesla í lok árs 2023.

„Þó að við metum þau gríðarlegu verðmæti sem Musk hefur skapað frá því að launapakkinn var samþykktur árið 2018 þá höfum við miklar efasemdir um stærð pakkans og samsetningu hans,“ segir norski olíusjóðurinn í tilkynningu.
Hluthafar hafa fram á fimmtudag til að greiða atkvæði um málið en niðurstaða dómstólsins í Delaware var sú að hin himinháa þóknun hafi verið samþykkt með óviðeigandi hætti í stjórn rafbílaframleiðandans og hafi verið ósanngjörn gagnvart hluthöfum fyrirtækisins.
Dómstóllinn sagði jafnframt að Musk hefði óeðlileg áhrif á stjórn Tesla þó að hann ætti aðeins 22% hlut í félaginu og stjórnin hafi ekki getað sýnt fram á að hlutirnir sem Musk fékk í laun hefðu verið veittir á sanngjörnu verði og í sanngjörnu ferli.