Tap norska olíusjóðsins nam 374 milljörðum norskra króna á þriðja ársfjórðungi 2023, eða sem nemur 4.657 milljörðum íslenskra króna. Arðsemi fjárfestinga var neikvæð um 2,1% á tímabilinu og rýrnuðu allar eignir sjóðsins í verði.

Að sögn Trond Grande, aðstoðarforstjóra sjóðsins, var fjórðungurinn verri á hlutabréfamarkaði en á fyrri helmingi ársins þar sem tækni- og iðngreinar höfðu helst áhrif til verri vegar.

Sjóðurinn er sá stærsti sinnar tegundar í heiminum og var metinn á 14.801 billjón (þúsund milljarða) norskar krónur í lok september.

Fréttin birtist í Viðskiptablaðinu, sem kom út í morgun. Áskrifendur geta lesið blaðið í heild hér.