Háskóla-, iðnaðar-, og nýsköpunarráðuneytið hóf vinnu í sumar, með nokkrum aðilum á sviði gervigreindar, við að greina hvort gullhúðun hafi átt sér stað á EES-gerðum á málefnasviði ráðuneytisins.
„Með notkun gervigreindar er hægt að greina gullhúðun á gildandi löggjöf án þess að kosta til þess fjölda vinnustunda sérfræðinga ráðuneytisins. Þá kann notkun gervigreindar að greina mynstur og tengsl innan lagabálkanna sem gætu annars farið fram hjá hefðbundinni greiningu,“ segir í tilkynningu frá ráðuneytinu.
Verkefnið er þegar hafið og gerir ráðuneytið ráð fyrir að frumniðurstöður verði tilbúnar seinna í haust.
„Það er mikið framfaraskref að geta með markvissari hætti nýtt gervigreind hjá hinu opinbera. Að nýta gervigreind til að greina gullhúðun, hvar við höfum gengið of langt í innleiðingu EES-gerða, sparar tíma og fjármuni ásamt því að vonandi leiða til þess að að einfalda regluverk,“ segir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra sem fer með málefni gervigreindar.
„Við byrjum á málaflokkum ráðuneytisins t.d. regluverki fjarskiptafyrirtækja og ég bind vonir við að fleiri ráðuneyti geti síðan nýtt sér lausnina. Það er mikilvægt fyrir fólk og fyrirtæki að laga- og regluumhverfi sé ekki meira íþyngjandi hér en annarsstaðar.”
Í meginatriðum telst gullhúðun vera þegar stjórnvöld einstakra ríkja ganga lengra við innleiðingu og setja meira íþyngjandi ákvæði en þær lágmarkskröfur sem gerðar eru í EES-gerðum. Þetta er því ákvörðun stjórnvalda í hverju landi að bæta einhverju við lagaramma sem ríkinu er ætlað að innleiða frá ESB.
Í skýrslu starfshóps á vegum utanríkisráðherra, sem var birt í sumar, kemur fram að það séu skýrar vísbendingar um að gullhúðun í íslenskri löggjöf sé talsvert algeng. Þá skorti í sumum tilfellum gagnsæi og rökstuðning þegar gullhúðun er beitt þrátt fyrir reglur þar um.
Ein af fimm tillögu hópsins var að hvert ráðuneyti myndi skoða hvort gullhúðun hafi átt sér stað á málefnasviðum sínum í gildandi löggjöf og taki upplýsta afstöðu til þess hvort ástæða sé til að „afhúða löggjöfina“.