Notkun á gervigreind hefur aukist um 28% hjá sérfræðingum (e. knowledge workers) á einu ári, eða úr 38% yfir í 66%, að því er fram kemur í HP Work Relationship Index 2024.

Ef marka má greiningu HP virðast sérfræðingar, sem nota gervigreind, njóta vinnunnar meira og framleiðni þeirra hefur aukist.

Gervigreind verður meginþema á hádegisfundi tæknifyrirtækisins OK sem fer fram á morgun á Reykjavik Edition. Þar verður sjónum beint að þeim tækifærum sem gervigreind getur fært fyrirtækjum og fólki yfirhöfuð.

„Fyrirtæki vilja almennt notfæra sér gervigreind í þrennum tilgangi: bæta innri kerfi og rekstur, auka framleiðni og efla sköpunarkraft starfsfólks og síðast en ekki síst bæta upplifun af blandaðri vinnu (e. Hybrid work). Endamarkmiðið er að skila af sér betri vörum og lausnum,“ segir Gísli Þorsteinsson, forstöðumaður Notendalausna OK.