Árið 2023 greiddu danskir lögaðilar samtals 101,7 milljarða danskra króna í fyrirtækjaskatta til ríkissjóðs.
Af þessari upphæð kom um 15% frá einu fyrirtæki, Novo Holdings, sem er móðurfélag lyfjafyrirtækisins Novo Nordisk. Þetta jafngildir 15,3 milljörðum danskra króna eða um 299,1 milljarði íslenskra króna.
Mun það vera tvöföldun á milli ára en skattspor Novo var um 8,7 milljarðar danskra króna árið 2022.
Novo Holdings er langstærsti skattgreiðandi í Danmörku en fyrirtækið greiðir alla skatta fyrir hönd Novo Nordisk.
Tölurnar koma fram í nýjum lista yfir stærstu tekjuskattsgreiðendur í Danmörku, sem birtur var af danska skattamálaráðuneytinu í dag en Børsen greinir frá.
Rasmus Stoklund, skattamálaráðherra Danmerkur, fagnar þessum tölum og segir þær vera skýrt merki um sterkt efnahagsástand í landinu.
Hann þakkar dönskum fyrirtækjum fyrir þeirra fjárhagslega framlag á „erfiðum tímum“ og bendir á að þessi framlög stuðli að fjármögnun velferðarkerfisins og eflingu varnarmála.
Á eftir Novo Holdings eru næststærstu greiðendur fyrirtækjaskatta í Danmörku Danske Bank og Kirkbi, eigandi Lego. Þessi fyrirtæki eru þó langt á eftir Novo Holdings í heildarupphæðum.
Fjármálageirinn er vel sýnilegur á toppi listans, sem má rekja til góðrar afkomu vegna hærra vaxtastigs og þjónustugjalda.
Frá og með 2023 þurftu fjármálafyrirtæki einnig að greiða sérstakt framlag, svokallað samfélagsframlag (samfundsbidrag), samkvæmt svokölluðu Arne-lífeyrissamkomulagi, sem veitir rétt til snemmtöku lífeyris. Þetta framlag jók heildarupphæð fyrirtækjaskatts um 2,7 milljarða danskra króna árið 2023.
Einnig má sjá á listanum að nokkrir af ríkustu einstaklingum og fjölskyldum landsins eru ofarlega. Til dæmis er Heartland, í eigu Anders Holch Povlsen sem á og rekur Best Seller, í 17. sæti með rúmlega hálfan milljarð danskra króna í greiddum fyrirtækjaskatti.
Á hinn bóginn hafa nokkur orkufyrirtæki, sem voru áberandi á listanum árið 2022, fallið niður á listanum fyrir 2023.
Til dæmis hefur Danske Commodities, sem var næststærsti fyrirtækjaskattsgreiðandinn árið 2022, fallið niður í 14. sæti.
Andel, sem er meðeigandi Energi Danmark, og Incommodities (Incomas Holding) féll úr 3. og 4. sæti árið 2022 niður í 47. og 33. sæti.
Þessar breytingar endurspegla sveiflur í orkugeiranum og sýna hvernig markaðsaðstæður geta haft áhrif á skattgreiðslur einstakra fyrirtækja.
Heildarlistinn yfir 100 stærstu fyrirtækjaskattsgreiðendur ársins 2023 gefur innsýn í efnahagslega stöðu mismunandi geira í Danmörku og undirstrikar mikilvægi stórra fyrirtækja í fjármögnun danska velferðarkerfisins.