Danska lyfjafyrirtækið Novo Nordisk var í morgun aftur orðið verðmætasta fyrirtæki Evrópu eftir að hlutabréfaverð tók kipp í morgunsárið, að því er segir í frétt Bloomberg um málið. Þýska hugbúnaðarfyrirtækið SAP hafði áður haldið titlinum frá því í mars sl.
Þegar frétt Bloomberg var skrifuð fyrir hádegi að dönskum tíma hafði hlutabréfaverð Novo Nordisk hækkað um allt að 2,3%. Það tók kipp eftir að lyfjarisinn greindi frá jákvæðum fréttum um nýjasta þungdarstjórnarlyf þeirra, amycretin.
Á þeim tíma stóð markaðsvirði Novo Nordisk í 365 milljörðum dala, eða um 45.333 milljörðum króna. Á sama tíma stóð markaðsvirði SAP í 364,3 milljörðum dala. Sem stendur er hlutabréfaverð SAP 255,4 evrur á hlut og hefur lækkað um 2,2% það sem af er degi. Hlutabréfaverð Novo Nordisk stendur í 516,2 dönskum krónum á hlut og hefur lækkað um 0,6% það sem af er degi.
Eins og áður segir tók SAP fram úr Novo Nordisk í lok mars en gengi Novo Nordisk hafði þá lækkað stöðugt eftir að hafa náð hápunkti fyrir ári síðan á meðan gengi SAP jókst stöðugt.
Novo Nordisk ákvað í síðasta mánuði að skipta út forstjóranum Lars Fruergaard Jorgensen en lyfjarisinn hefur glímt við mikla samkeppni frá öðrum lyfjafyrirtækjum, á borð við bandaríska fyrirtækið Eli Lilly. Eftir neikvæðar niðurstöður rannsókna á þyngdarstjórnunarlyfinu CagriSema lækkaði hlutabréfaverð fyrirtækisins um meira en 40% á innan við ári. Niðurstöður rannsókna á CagriSema þurrkuðu næstum 100 milljarða Bandaríkjadala af markaðsvirði fyrirtækisins í desember í fyrra.