Íslenska líftæknifyrirtækið ArcanaBio hlaut nýverið fjármögnun frá BioInnovation Institute (BII) í Danmörku sem er djúptæknihraðall fyrir brautryðjandi nýsköpunarfyrirtæki með áherslu á líftækni og er stutt af Novo Nordisk stofnuninni.

Um er að ræða fjármögnun upp á fjórar milljónir danskar eða rúmlega 80 milljónir íslenskra króna. Er fjármagninu og stuðningnum í gegnum hraðalinn ætlað að styðja við þróun á nýrri tækni sem Arcana hefur unnið að undanfarið fyrir greiningar á próteinum með nýrri ljóstækni.

Í tilkynningu segir að félagið hafi nú þegar sótt um einkaleyfi á tækninni í Bandaríkjunum fyrr á þessu ári.

„Við erum afar stolt yfir því að fá þennan öfluga stuðning frá BII og Novo Nordisk stofnuninni, en einnig er við afskaplega þakklát fyrir þann stuðning sem við fengum núna fyrr á árinu með fjármögnun frá Nýsköpunarsjóði Atvinnulífsins og fjárfestum. Markmið okkar hjá Arcana er í grunninn að endurhugsa heilsufarsgreiningar til lengri tíma. Í því felst að þróa lausnir sem styðja við heilsuforvarnir og stuðla að eflingu á heilsuvitund meðal fólks með hjálp nýrra greiningalausna sem henta dags daglega, t.d til að fylgjast með streitu og styðja við andlega líðan,” segir Kristján Már Gunnarsson, framkvæmdastjóri Arcana.

Tæknin byggir í grunninn á nýrri ljósgreiningatækni sem notast við gervigreind til að greina og mæla mismunandi gagnapunkta út úr próteinum með mikilli nákvæmni. Aðferðin þarfnast ekki dýrra hvarfefna (e.reagents), tekur örfáar mínútur í framkvæmd og er mun hagkvæmari en núverandi lausnir eins og ELISA eða Mass Spec. Þá býður lausnin einnig upp á að skoða mikinn fjölda lífmerkja í hverri keyrslu fyrir sig.

„Þessi tækni felur í sér mikil tækifæri til að greina mikinn fjölda lífmerkja (e. biomarkers), og hentar sérstaklega vel til að fylgjast með mörgum lífmerkjum yfir lengri tímabil á mun hagkvæmari hátt en núverandi aðferðir bjóða upp á. Þá verður einnig hægt að nota tæknina til að greina munnvatnssýni,” segir Daníel Óskarsson, tæknistjóri Arcana.

Hluti af starfsemi félagsins mun flytjast til Danmerkur og hafa aðsetur í djúptæknihluta BioInnovation Institute, Deep Tech Lab Quantum í Kaupmannahöfn, og mun starfa innan um önnur fyrirtæki í hátækni- og skammtafræðiþróun.