Landeldisfyrirtækið First Water hefur lokið hlutafjáraukningu að fjárhæð 39 milljónir evra, sem samsvarar um 5,7 milljörðum króna.

Hlutafjáraukningin var leidd af núverandi hluthöfum, þar á meðal Stoðum hf., FW Horn slhf., Framherja ehf., Lífeyrissjóði verslunarmanna, Brú lífeyrissjóði, Líru ehf. og LSR. Þetta kemur fram í tilkynningu félagsins í dag.

Í bréfi til hluthafa í lok febrúar greindi Jón Sigurðsson, forstjóri Stoða, frá því að félagið hygðist ætla setja 2 milljarða til viðbótar inn í First Water en landeldisfyrirtækið væri að vinna með fjárfestingarbankanum Lazard að því að fá inn erlenda fjárfesta að félaginu.

Í millitíðinni væri gert ráð fyrir hlutafjáraukningu meðal núverandi hluthafa til að styðja við áframhaldandi uppbyggingu.

Samkvæmt tilkynningunni hefur First Water með þessari aukningu alls aflað sér 161 milljón evra í hlutafé, eða um 24 milljarða króna. Í lok síðasta árs var tilkynnt um 80 milljóna evra lánsfjármögnun frá Landsbankanum og Arion banka, sem nemur samtals um 12 milljörðum íslenskra króna.

Félagið hefur því tryggt sér samtals 35 milljarða króna í fjármögnun, en fjárfesting í verkefninu nemur nú yfir 20 milljörðum króna. Heildarfjárfestingin er áætluð að nema um 825 milljónum evra, eða um 120 milljörðum króna.

Eggert Þór Kristófersson, forstjóri First Water, segir í tilkynningu að þessi fjármögnun endurspegli mikið traust núverandi hluthafa.

„Þessi fjármögnun endurspeglar mikið traust og trú þeirra sem þekkja okkur best – núverandi hluthafa. Hún gerir okkur kleift að halda áfram að fjárfesta í uppbyggingu á starfsemi okkar í Þorlákshöfn og hraða framleiðslu á hágæða útflutningsvöru. Áætlanir okkar varðandi uppbyggingu hafa staðist og við gerum ráð fyrir að fyrsta fasa verkefnisins ljúki á þessu ári. Við finnum fyrir miklum áhuga á erlendum mörkuðum á hágæða laxi sem framleiddur er fyrir alþjóðlega markaði með nýjustu tækni, í öflugu samstarfi við nærsamfélagið og með sterkri áherslu á ábyrga nýtingu náttúruauðlinda. Umhverfisvernd og strangt gæðaeftirlit eru grunnstoðir í allri starfsemi First Water. Við erum þakklát fyrir þennan öfluga stuðning okkar hluthafa og hlökkum til að nýta tækifærin sem fram undan eru.“