HILI, sjóður sem býður upp á að koma til móts við fasteignaeigendur með fjárfestingu í hluta íbúðarhúsnæðis þeirra, hefur fengið góðar undirtektir á þeim örskamma tíma síðan sjóðurinn var stofnaður í nóvember í fyrra.
Samkvæmt fyrirtækinu hafa myndast biðlistar sem fara ört vaxandi en að sögn fyrirtækisins hafa íslenskir fasteignaeigendur sýnilegan áhuga á að kanna þá möguleika sem HILI hefur upp á að bjóða með sameiginlegu eignarhaldi á heimilum sínum.
„Við erum himinlifandi með viðbrögðin á Íslandi, bæði áhugann og traustið sem húseigendur bera til viðskiptamódelsins okkar. Lausnirnar sem við bjóðum upp á gera húseigendum kleift að fá aðgang að verðmætum fasteigna sinna en eiga áfram stóran hluta í þeim án þess að bera jafn þungar fjármögnunarbyrðar og áður. Þessi mikla eftirspurn sem við höfum séð, sýnir fram á augljósa þörf á markaðnum,“ segir Trond Eriksen, meðstofnandi HILI.
Mikill áhugi á íslenskum markaði
Með viðskiptamódeli HILI gefst fasteignaeigendum tækifæri á að selja hluta af eignum sínum til sjóðsins í þeim tilgangi að losa um hluta af fjárfestingunni sem þar er bundinn.
Lausnin er hönnuð til að hjálpa fasteignaeigendum að mæta óvæntum útgjöldum eða skipuleggja framtíðina án þess að auka skuldir eða neyðast til að selja heimili sín að fullu.
„Okkur hefur þótt merkilegt að fylgjast með þessum mikla áhuga á HILI á Íslandi. Vaxandi eftirspurn eftir sveigjanlegu eignarhaldi endurspeglar breytingar á markaði og við erum þess fullviss að lausn HILI mæti þörfum íslenskra fasteignaeigenda. Þessi ónýtti markaður er að sækja í sig veðrið og við erum stolt af því að leiða þá umbreytingu,“ segir Sigurður Viðarsson, nýráðinn framkvæmdastjóri HILI á Íslandi.
Í fréttatilkynningu frá félaginu segir að Sigurður beri ábyrgð á HILI á Íslandi en hann hefur
25 ára reynslu úr fjármálageiranum, m.a. sem aðstoðarforstjóri Kviku banka og forstjóri TM trygginga.
Eins og áður segir gerir HILI fasteignaeigendum kleift að losa eigið fé úr eignum sínum og býður þannig upp á lausn sem er í takt við þarfir einstaklinga sem og markaðarins.
„Biðlistinn, sem hefur nú þegar myndast, endurspeglar ekki aðeins áhuga fólks á lausn HILI heldur einnig styrk íslensks húsnæðismarkaðar og vilja fasteignaeigenda til að tileinka sér nýjar fjármálalausnir. Við erum að vinna að því að auka getu okkar til að mæta þessari vaxandi eftirspurn á Íslandi. Þær góðu viðtökur sem við höfum nú þegar fengið gefa okkur í HILI byr í seglin og við hlökkum til farsæls samstarfs og samvinnu við fasteignaeigendur,“ segir Sigurður.
HILI rekur vaxandi eftirspurn til nokkurra þátta, þar á meðal hækkandi fasteignaverðs, aukins fjárhagslegs sveigjanleika og löngunar til nýstárlegra valkosta í bland við hefðbundna fjármögnunarmöguleika.
Sjóður HILI veitir fjárfestum aðgang að fjárfestingu á fasteignamarkaði án þess að fjárfesta beint í einstöku íbúðarhúsnæði með tilheyrandi áhættu og kostnaði.