Þessa dagana er unnið hörðum höndum við að standsetja húsnæði Mathallar Höfða, en stefnt er að opnun mathallarinnar um miðjan þennan mánuð. Sólveig Guðmundsdóttir og Steingerður Þorgilsdóttir, eigendur mexíkóska veitingastaðarins Culiacan, standa að opnun mathallarinnar. Sólveig segir að upphaflega hafi þær eingöngu ætlað að opna nýjan Culiacan stað á Höfðanum en eftir að hafa boðist stórt húsnæði á leigu hafi hugmyndin um mathöll kviknað.
„Þessi staðsetning hentar okkur mjög vel þar sem þetta er mátulega langt frá hinum staðnum okkar á Suðurlandsbraut og við vissum að þetta væri veitingalega séð mjög sterkt hverfi. Þetta er mjög sterkt atvinnusvæði og svo er staðsetningin í grennd við þessar fjölmennu efri byggðir; Grafarvog, Grafarholt og Árbæinn. Veitingaúrvalið á Höfðasvæðinu er einnig nokkuð takmarkað og því sáum við mikið tækifæri í því að opna mathöll hér.
Okkur stóð til boða þetta stóra húsnæði og sáum strax að það væri of stórt fyrir Culiacan eitt og sér. Við fórum því að líta í kringum okkur og kanna möguleikana. Í kjölfarið kviknaði þessi mathallarhugmynd sem nú er að verða að veruleika."
Nýir veitingastaðir í bland við gamla
Fjölbreyttur matur verður í boði í Mathöll Höfða en ásamt fyrrnefndum Culiacan munu þær Sólveig og Steingerður reka veitingastaðinn Svangi Mangi, sem mun bjóða upp á íslenskan heimilismat. Þá verða veitingastaðirnir Wok On, Gastro Truck, Indican, Hipstur og Íslenska flatbakan einnig með bás í mathöllinni. Auk þess verða Sætir Snúðar með bás þar sem gestir geta gætt sér á kanilsnúðum og kaffi. Loks mun brugghúsið Beljandi sjá um að svala þorsta gesta, en þeir munu hafa aðsetur í hluta af bás Svanga Manga.
„Við lögðum upp með að það yrði fjölbreyttur matur í boði sem næði yfir allan skalann, þannig að allir gætu fundið eitthvað við sitt hæfi. Þá vildum við einnig að veitingastaðirnir í mathöllinni yrðu nýir í bland við gamla, þar sem eldri veitingastaðirnir hafa þegar sannað sig og byggt upp tryggan viðskiptavinahóp. Það er mikil áhætta fólgin í því að opna sjö eða átta nýja veitingastaði undir sama þaki og sökum þess þótti okkur mikilvægt að hafa þetta blandað," segir Sólveig.
Sólveig segir að skemmtilegt samstarf hafi myndast milli veitingastaðanna í mathöllinni. „Mér þykir þetta lofa mjög góðu og ég hef ekki upplifað þessa stemningu áður. Oftast eru veitingastaðir svolítið hver í sínu horni að berjast áfram. Hér leggjast hins vegar allir á eitt, enda er það sameiginlegt markmið allra að aðsóknin verði sem allra mest."
Nánar má lesa um málið í Viðskiptablaðinu sem kemur út á morgun. Áskrifendur geta nálgast blaðið undir Tölublöð , aðrir geta skráð sig í áskrift hér . Meðal annars efnis í blaðinu er:
- Farið er yfir uppgang Marels að undanförnu.
- Sagt er frá niðurstöðu könnunar sem KPMG gerði meðal ferðaþjónustuaðila.
- Farið er yfir afkomu síðasta árs hjá kauphallarfélögunum.
- Staða Íslands þegar kemur að fjórðu iðnbyltingunni er krufin.
- Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvá, er tekin tali.
- Yfirmaður skráninga á Norðulöndunum og í Evrópu hjá kaupahallarfyrirtækinu Nasdaq er í viðtali.
- Rætt er við nýjan svæðisstjóra Arion banka á Vesturlandi.
- Fjallað er um hönnunarstofu sem nýlega vann vefverðlaun.
- Huginn og Muninn eru á sínum stað auk Týs, sem fjallar um Áfallasögu.
- Óðinn skrifar um vini öreiganna, tillögur ríkisstjórnarinnar í skattamálum og tillögu Sjálfstæðisflokksins um lækkun útsvars í Reykjavík.